Lífið

David Blaine skildi James Corden eftir gapandi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ótrúlegur eins og alltaf.
Ótrúlegur eins og alltaf.
Töframaðurinn David Blaine á það til að sjokkera fólk með sínum ótrúlegu brögðum. Kappinn var gestur hjá breska spjallþáttstjórnandanum James Corden í vikunni og sýndi brögð sem sjaldan hafa sést í sjónvarpi.

Töframaðurinn byrjaði á því að biðja Corden um að reka nál í gegnum kinn hans, sem gekk að lokum eftir. Bretinn ekkert sérstaklega hrifinn af þeirri tilraun.

Blaine gleypti síðan bæði nálar og glerbrot og skildi Corden eftir gjörsamlega agndofa.

Hér að neðan má sjá þessa mögnuðu atburðarrás. 

Vísir mælir með því að fólk leiki þetta alls ekki eftir heima sjá sér.

 





Fleiri fréttir

Sjá meira


×