Tíska og hönnun

David Beckham sýnir líkamann fyrir H&M

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Nýju auglýsingamyndirnar fyrir undirfatalínu knattspyrnugoðsins David Beckham, 39 ára, fyrir verslunarkeðjuna H&M eru komnar á netið.

Á myndunum sýnir David stæltan líkamann í hinum ýmsu flíkum sem eru í línunni.

David hefur unnið með H&M síðustu ár en fyrsta línan hans kom á markað árið 2011. Hann er sérstaklega ánægður með nýju línuna.

„Ég er mjög spenntur yfir nýju línunni. Áhersla er á notagildi og auðvitað gott snið. Gæðaflíkur með karlmannlegt yfirbragð. Ég vona að öllum líki jafn vel við flíkurnar eins og mér,“ segir goðið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×