Lífið

Dave Hester aftur í Storage Wars: „Yuup“

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Jarrod, Dan, Dave, Darrell og Barry.
Jarrod, Dan, Dave, Darrell og Barry.
Ein af helstu stjörnum raunveruleikaþáttarins Storage Wars mun birtast aftur á skjánum eftir að hafa staðið í málaferlum við þáttastjórnendur. Dave Hester verður í nýjustu þáttaröðinni sem verður frumsýnd þann 12 ágúst í Bandaríkjunum.

Storage Wars hefur notið mikilla vinsælda í Bandaríkjunum sem og hér á landi. Þátturinn er sýndur á stöðinni History Channel, sem næst á Fjölvarpinu. Þátturinn er um fólk sem kaupir hluti sem hafa verið skildir eftir í geymslum í Bandaríkjunum , á uppboði. Oft finnur fólkið verðmætar gersemar í geymslunum. En það sem gerir þættina sérstaklega spennandi er að fólkið má ekki fara inn í geymslurnar áður en það kaupir hlutina sem eru inni í þeim og því þarf innsæi og heppni til þess að græða á þessum viðskiptum.

Hester hætti í þáttunum árið 2012 og hefur staðið í málaferlum við þáttastjórnendur síðan. Hann sagði opinberlega að þátturinn væri sviðsettur og að þáttastjórnendur settu oft verðmæta hluti inn í geymslurnar, til að búa til betra sjónvarp. Hester var ein af helstu stjörnum þáttanna, en hann vakti alltaf athygli fyrir hegðun sína á uppboðum. Hann beið alltaf fram á síðustu stundu og kallaði þá: „Yuup“ hátt og snjallt. Hann sveifst einskis í eldri þáttaröðunum og verður fróðlegt að sjá hvort að hann muni halda áfram að tala niður til annarra sem sækja uppboðin.

Endurkoma Hester í þættina gæti tengst minnkandi áhorfi; þetta gæti verið tilraun til þess að sporna við því. Í fyrstu þáttaröðunum var Hester helsta stjarnan ásamt hinum líflega Barry Weiss. Weiss er nú hættur í þáttunum, eftir að hann byrjaði með sína eigin þáttaröð sem heitir Barry‘d Treasure.

Fyrr í mánuðinum var sagt frá því að Dan Dotson, uppboðshaldari og ein af stjörnum Storage Wars, hefði fengið slagæðagúlp. Hann var á spítala í tvær vikur en hefur verið útskrifaður og mun halda áfram í þáttunum.

Metin á hundruði milljóna

Stjörnur Storage Wars taka þátt í uppboðunum af mismunandi ástæðum. Sumir þeirra reka búðir sem selja notaða hluti en aðrir eru að leita að fjársjóði sem þeir geta selt áfram og grætt peninga.

Á vefnum Celebrity Net Worth er virði frægs fólks í Bandaríkjunum metið út frá eignum. Hér að má sjá lista yfir hvað stjörnur Storage Wars eru metnar á.

Dave Hester  346 milljónir króna

Barry Weiss  1,15 milljarð króna

Darrell Sheets  518 milljónir króna

Jarrod Schulz  172 milljónir króna

Brandi Passante 172 milljónir króna

Dan Dotson 518 milljónir króna






Fleiri fréttir

Sjá meira


×