Tónlist

Dauðaþögn í salnum þegar Frikki Dór sjarmaði liðið upp úr skónum - Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Friðrik Dór kom fram á Hlustendaverðlaununum.
Friðrik Dór kom fram á Hlustendaverðlaununum. vísir
Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór Jónsson kom fram á Hlustendaverðlaununum sem fór fram í Háskólabíói síðastliðið föstudagskvöld.

Verðlaunin voru í beinni útsendingu á Stöð 2 og Vísi og þóttu takast vel. Frikki Dór mætti og tók lagið Skál fyrir þér.

Atriðið var virkilega vel heppnað, hugljúft og var algjör dauðaþögn í salnum á meðan söngvarinn flutti lagið. Hér að neðan má sjá flutning Frikka Dórs úr Háskólabíói.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×