Heilsa

Dásamleg karrýkókossúpa úr Heilsugenginu

Rikka skrifar
Heilsugengið fékk orkuboltann hana Írisi Björk Tanyu Jónsdóttir og Solla Eiríks bjó til dásamlega og bráðholla súpu.



Karrýkókossúpan góða

400ml kókosmjólk
400 ml vatn
400 ml tómatpassata
2 hvítlauksrif
1-2 sítrónugrasstönglar
3-4 límónulauf

1 msk curry paste 

1 msk tómatpúrra

engifersafi eða smá biti fersk engiferrót, afhýdd (2-3 cm)

smá biti ferskur chili - stærð fer eftir því hvað þú vilt hafa súpuna sterka/milda

2 tsk grænmetiskraftur

smá salt 
útí á eftir:

bakaðar kartöflur í bitum

Setjið allt í pott og látið suðuna koma upp og látið sjóða í 15-20 mín, smakkið til með salti og pipar. Setjið kartöflurnar útí og hlakkið til að borða.

Tengdar fréttir

Mataræði algjört lykilatriði

Heilsugengið hefur göngu sína á ný í kvöld á Stöð 2. Gestir þáttarins í kvöld eru Bubbi Morthens og Hrafnhildur Hafsteinsdóttir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×