Bíó og sjónvarp

Darren Aronofsky mætir á RIFF

Höskuldur Kári Schram skrifar
Hrönn Marinósdóttir listrænn stjórnandi RIFF.
Hrönn Marinósdóttir listrænn stjórnandi RIFF. Visir/Anton Brink
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík, RIFF, hefst í næstu viku en þetta er í 13. sinn sem hún er haldin. Von er á fjölmörgum erlendum gestum hingað til lands í tengslum við hátíðina þar á meðal kvikmyndaleikstjóranum Darren Aronofsky.

Dagskrá hátíðarinnar var kynnt í dag en hún hefst á fimmtudag í næstu viku og stendur til 9. október næstkomandi.

Hátt í sjötíu myndir verða sýndar auk fjölda stuttmynda og sérsýninga.Veitt verða verðlaun í fjórum flokkum á hátíðinni í ár. Einnig er von á þekktum nöfnum hingað til lands í tengslum við hátíðina þar á meðal bandaríska leikstjóranum Darren Aronofsky. Aronofsky er meðal annars þekktur fyrir kvikmynda Noha sem var að hluta til tekin upp hér á landi.

Hrönn Marinósdóttir stjórnandi RIFF segir að hátíðin hafi tekið miklum breytingum á síðustu þrettán árum. Hún segir einnig að hátíðin skipti miklu máli fyrir kvikmyndagerðarmenn hér á landi.

„Fyrir fagfólkið auðvitað. Þetta snýst um tengslanet og að kynnast fólki. Afraksturinn er líka sá að það er fullt af leikstjórum sem koma aftur til Íslands og vinna verkefnin sín hér á landi þannig að RIFF er að skapa fullt af tekjum,“ segir Hrönn






Fleiri fréttir

Sjá meira


×