Lífið

Dansprufur fyrir risatónleika Páls Óskars fara fram á sunnudaginn

Stella Rósenkranz og Páll Óskar sjá um alla sviðsetningu á tónleikunum.
Stella Rósenkranz og Páll Óskar sjá um alla sviðsetningu á tónleikunum.
„Ég er mjög spennt fyrir prufum, og hlakka til að sjá alla dansarana dansa við Stanslaust stuð, sem er eitt af mínum uppáhaldslögum. Það er svo sexí og framsækið lag. Prufurnar fara fram í World Class í Laugum á sunnudaginn,“ segir danshöfundurinn og listræni stjórnandinn Stella Rósenkranz, en hún mun sjá um dansprufurnar fyrir risatónleika Páls Óskars sem fram fara í Laugardalshöll 16. september. Stella sér um daglegan rekstur Dansstúdíós World Class, alla sviðsetningu á The Voice Ísland, nokkur atriði í Söngvakeppni Sjónvarpsins ásamt því að vinna með Páli Óskari að sviðsetningu tónleikana. „Það er mjög gaman að vinna að mörgum verkefnum í einu, þetta snýst alltaf bara um tímastjórnun. Það er frábært að vinna með Palla, við höfum unnið svo oft saman að við erum orðin rosa náin og skiljum hvort annað,“ segir Stella. Átján ára aldurstakmark er í prufurnar sem hefjast kl. 13.00. „Það á þá við um alla þá sem ná 18 ára aldri á árinu. Allir velkomnir og skráning fer nú fram í gegnum event-inn á Facebook-i Sena Live,“ segir Stella. Leitað er að tólf strákum og fjórum stelpum, prufurnar eru opnar öllum, burtséð frá dansstíl og fyrri reynslu. „Ég vonast til að sjá mikið af dönsurum með mismunandi bakgrunn í dansi. Við erum að leita að allri flórunni af dansstílum, því fjölbreyttara því betra. Við erum að leita að ákveðnum krafti og persónulegum stíl dansara frekar en að eltast við „besta“ dansarann,“ útskýrir Stella og bætir við að tónleikarnir verði kaflaskiptir og þau leiti að mismunandi dönsurum í ákveðna kafla á tónleikunum. Ertu með einhver góð ráð fyrir þá sem ætla að skella sér í prufurnar? „Já, bara að vera 100% þú sjálfur. Við Palli getum ekki beðið eftir að sitja og fá að horfa á íslenska dansara gjörsamlega taka gólfið. Ég þrífst á því að horfa á góða dansara sýna hvað þeir geta. Þetta á bara að vera eitt gott partí, jákvætt og gaman. Svo ef þú ert með einhverjar efasemdir, kastaðu þeim út um gluggann og mættu. Þú munt ekki sjá eftir því,“ segir Stella. gudrunjona@frettabladid.is





Fleiri fréttir

Sjá meira


×