Körfubolti

Dansmamman dansaði við Curry | Myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Danspar ársins.
Danspar ársins.
Robin Schreiber, sem er einfaldlega þekkt sem dansmamman eftir að hafa slegið í gegn í stúkunni á leik með Golden State, fékk stóran draum uppfylltan í gær.

Þar sem hún er orðin svona þekkt þá var hún fengin til þess að mæta á stjörnuhelgi NBA-deildarinnar. Þar fékk hún að hitta hetjurnar sínar í liði Warriors.

Það sem meira er þá ákvað dansmamman að taka stórstjörnu Warriors-liðsins, Steph Curry, í smá danskennslu. Kenna honum sporin sem gerðu hana fræga.

Það verður að gefa Curry það að hann gaf þeirri gömlu ekkert eftir í dansinum eins og sjá mér hér að neðan.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×