Glamour

Dansandi Gisele í nýrri auglýsingu

Ritstjórn skrifar
skjáskot
Fyrirsætan Gisele Bündchen tekur fram dansskónna í nýrri sjónvarpsauglýsingu fyrir í skóframleiðandann Stuart Weitzman

Auglýsingin verður frumsýnd í heild sinni á MTV Video Music Awards sem fer fram á sunnudaginn en bakvið linsuna er sjálfur Mario Testino. Danshöfundur er sá hinn sami og sér um að búa til sporin fyrir Justin Timberlake, Marty Kudelka

Hér fyrir neðan má sjá myndband frá tökunum á auglýsingunni en Gisele hefur áður sungið í auglýsingu fyrir H&M og leikið dramatískt hlutverk fyrir Chanel í leikstjórn Baz Luhrmann.


Nýtt Glamour er komið í allar helstu verslanir - tryggðu þér eintak!
Fylgstu með Glamour á Instagram og á Facebook.





×