Fótbolti

Dansaði í gegnum vörn Bayern og tryggði Atlético sigur | Sjáðu sigurmarkið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Saúl fagnar marki sínu með liðsfélögum sínum hjá Atletico Madrid.
Saúl fagnar marki sínu með liðsfélögum sínum hjá Atletico Madrid. Vísir/Getty
Atlético Madrid steig stórt skref í átt að því að slá annað stórlið út úr Meistaradeildinni þegar liðið vann 1-0 sigur á Bayern München í kvöld í fyrri undanúrslitaleik liðanna.

Atlético Madrid sló Barcelona út í átta liða úrslitunum og er nú í fínum málum fyrir seinni leikinn í Þýskalandi. Það lið sem hefur betur mætir annaðhvort Manchester City eða Real Madrid í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Jan Oblak, markvörður Atlético Madrid, hélt marki sínu hreinu í 23. sinn á tímabilinu og það verður allt annað en auðvelt fyrir leikmenn Bayern München að opna frábæra vörn Atlético-liðsins í seinni leiknum.

Sigurmarkið skoraði ungur Spánverji og mark í svona gæðaflokki á svo sannarlega skilið að tryggja liði sigur í mikilvægum leik í Meistaradeildinni.

Diego Simeone, þjálfari Atlético Madrid, setti leikinn frábærlega upp fyrir sitt lið eins og oft áður á tímabilinu og það lítur út fyrir að Barcelona-boltinn henti ekki vel á móti hans liðum.

Bayern München spilaði betur í seinni hálfleiknum en tókst ekki að skora eins og mörgum öðrum sterkum liðum á móti Atlético á þessu tímabili.

Saúl Níguez kom Atlético Madrid í 1-0 strax á 11. mínútu með frábæru marki þar sem hann dansaði í gegnum vörn Bayern München og lagði síðan boltann í fjærhornið.

Þetta var svona mark sem flestir héldu að Lionel Messi gæti bara skorað en hinn 21 árs gamli Saúl Níguez sýndi með þessum tilþrifum að hann á framtíðina fyrir sér.

Bayern München var mun meira með boltann en gekk illa að opna vörn Atlético. Arturo Vidal átti reyndar skalla sem var bjargað á línu stuttu eftir markið en aðeins algjör klaufaskapur varnarmannsins Jose Maria Gimenez hefði þurft til ef að sá bolti átti að enda í markinu.

Stuðningsmenn Bæjarar héldu um tíma að Douglas Costa hefði jafnað metin með skoti úr aukaspyrnu á 25. mínútu en skot hans endaði í hliðarnetinu.

David Alaba var mjög óheppinn að jafna ekki metin á 54. mínútu þegar frábært langskot hans fór í slána og niður. Atlético-menn höfðu þá heppnina með sér en skotið kom upp úr engu. Bayern byrjaði seinni hálfleikinn vel og Jan Oblak gerði vel í að verja skalla Javi Martinez skömmu síðar.

Oblak varði líka vel frá Arturo Vidal á 74. mínútu en aðeins tveimur mínútur síðar slapp Fernando Torres óvænt í gegn eftir sendingu Koke en skot Torres fór í stöngina.

Arturo Vidal fékk ágætt færi í uppbótartíma leiksins en Oblak varði lélegt skot hans og síðasti möguleiki Bayern-liðsins rann út í sandinn.

Leikur Atlético Madrid og Bayern München var mun meiri skemmtun en fyrri leikur Manchester City og Real Madrid í gær sem endaði með markalausu jafntefli. Það er hinsvegar enn mikil spenna í báðum viðureignum.

Þvílíkt mark hjá Saúl



Fleiri fréttir

Sjá meira


×