Sport

Dansaði á íshokkíleik og sló í gegn | Myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
„Dancing Kevin“ hefur slegið í gegn með danstilþrifum sem hann sýndi nýverið á leik í bandarísku NFL-deildinni í íshokkí.

Meðfylgjandi myndband hefur farið um netið eins og eldur um sinu og leiðist okkar manni ekki athyglin, líkt og sjá má á Twitter-síðu hans.

Hann hefur sagt í viðtölum að hann muni yfirleitt ekki eftir dansinum - hann detti í hálfgerðan trans. „Ég er í fyrsta lagi algjörlega skelfingu lostinn. Ég stend upp og byrja og þá fyrst verður allt svart hjá mér. Ég sé í raun ekki neitt. En ég heyri greinilega lagið því ég dansa við taktinn. En ég skil ekki hvað er í gangi.“

Myndbandið talar sínu máli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×