Enski boltinn

Danny Welbeck til Arsenal

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Enska úrvalsdeildarfélagið Arsenal hefur staðfest kaup á enska landsliðsframherjanum Danny Welbeck frá Manchester United. Greint var frá kaupunum á heimasíðu Lundúnafélagsins í kvöld.

Félagaskiptaglugganum var lokað klukkan 22 í kvöld en fyrir þann tíma höfðu félögin tvö skilað þeim gögnum sem þurfti. Arsenal hafði fyrr í kvöld hafnað að Welbeck væri á leið til félagsins .

Talið er að kaupverðið sé í kringum 16 milljónir punda. Enn á eftir að fást staðfest hvort Radamel Falcao verði nýjasti liðsmaður Manchester United. Kólumbíumaðurinn er sagður hafa gengist undir læknisskoðun hjá félaginu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×