Golf

Danny Lee sigraði eftir dramatískan lokahring á Greenbrier

Kári Örn Hinriksson skrifar
Danny Lee á lokahringnum.
Danny Lee á lokahringnum. Getty.
Lokahringuinn á Greenbrier Classic í kvöld var gríðarlega spennandi en hann endaði með því að fjórir kylfingar þuftu að fara í bráðabana um sigurinn.

David Hearn, Kevin Kishner, Danny Lee og Robert Streb léku hringina fjóra á hinum aldargamla Old White TPC velli á 13 höggum undir pari og því þurfti að grípa til bráðabana á 18. holu sem er 160 metra par þrjú hola.

Hearn og Lee fengu fugl á fyrstu holu í bráðabana og því þurfti að leika hina par fimm 17. holu.

Þar fékk Hearn skolla en Lee par og því sigraði þessi 24 ára kylfingur frá Nýja-Sjálandi á sínu fyrsta móti á PGA-mótaröðinni.

Bubba Watson sem sigraði á mótinu í fyrra átti góða titilvörn en endaði jafn í 13. sæti á tíu höggum undir pari, þremur frá efsta sætinu.

Þá var Tiger Woods á meðal þátttakenda en hann sýndi oft á tíðum góða takta og lék meðal annars lokahringinn á 67 höggum án þess að fá einn einasta skolla.

Hann endaði í 32. sæti á sjö höggum undir pari og virðist aðeins vera að rétta úr kútnum eftir hræðilega byrjun á árinu.

Fyrir sigurinn fékk Danny Lee rúmlega 130 milljónir í verðlaunafé ásamt þátttökurétt á PGA-mótaröðinni í tvö ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×