Handbolti

Daninn Stephen Nielsen til í að spila fyrir íslenska landsliðið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Íslenska landsliðið gæti fengið góðan liðstyrk á næstu misserum fái danski markvörðurinn Stephen Nielsen íslenskt vegabréf en Nielsen er spenntur fyrir því að spila með íslenska landsliðinu.

Stephen Nielsen hefur verið einn allra besti markvörður Olís-deildar karla í handbolta síðustu tvö tímabil, fyrst með Fram í fyrra og nú með toppliði Valsmanna.  

Stephen Nielsen fór á kostum í marki Valsmanna á móti Haukum í gærkvöldi. Hann hreinlega lokaði markinu á löngum köflum og Valsmenn höfðu sjö marka forystu í hálfleik, 17-10. Valsmenn léku við hvern sinn fingur og unnu sannfærandi sigur, 33-26.

Stephen Nielsen var öðrum fremur maður leiksins og Guðjón Guðmundsson ræddi við hann eftir leikinn.

„Við erum á góðum stað núna en það er langur vegur eftir. Það er einn leikur fyrir jólafrí en þetta snýst alltaf um að standa sig sem best eftir jól. Það er samt alltaf gaman að vera í fyrsta sæti," sagði Stephen Nielsen sem talaði íslensku í viðtalinu við Gaupa.

Stephen Nielsen útilokar ekki að sækja um íslenskan ríkisborgararétt til þess að freista þess að vinna sér sæti í íslenska landsliðinu.

„Það væri mikill heiður fyrir mig að fá tækifæri til að spila með íslenska landsliðinu og mjög gaman. Ég hef ekki pælt mikið í þessu en mér líður rosalega vel á Íslandi og ef mér væri boðið þetta tækifæri þá myndi ég bara segja: Já, takk," sagði Stephen Nielsen brosandi.

Stephen Nielsen varði 24 skot frá Haukunum í gær þar af 14 af 24 skotum Haukanna í fyrri hálfleiknum (58 prósent markvarsla) þegar Valsliðið náði sjö marka forskoti.

Allt innslag Guðjóns Guðmundssonar um leikinn má sjá hér að ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×