Formúla 1

Daniel Ricciardo á ráspól í Mónakó

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Ricciardo var fljótastur í Mónakó í dag.
Ricciardo var fljótastur í Mónakó í dag. Vísir/Getty
Daniel Ricciardo á Red Bull náði ráspól í Mónakó. Nico Rosberg á Mercedes varð annar og Lewis Hamilton varð þriðji.

Ricciardo náði sínum fyrsta ráspól á ferlinum og fyrsta ráspól Red Bull síðan í Brasilíu 2013.

Felipe Nasr komst ekki nema hálfan hring eða svo.Vísir/Getty
Fyrsta lota

Felipe Nasr gat ekki klárað fyrsta hringinn í tímatökunni. Vélin í Sauber bílnum gaf sig með látum. Tímatakan var í kjölfarið stöðvuð tímabundið á meðan brautarstarfsmenn fjarlægðu bíl hans af brautinni.

Max Verstappen á Red Bull lenti á varnarvegg í fyrstu lotu tímatökunnar eftir að hafa snert varnarvegg í beygjunni á undan. Mikill skellur fyrir 18 ára ökumanninn sem vann síðustu keppni.

í fyrstu lotu duttu út, Nasr og liðsfélagi hans Marcus Ericsson, Verstappen, Jolyon Palmer á Renault og Manor ökumennirnir.

Önnur lota

Williams bíllinn var stirður og alls ekki samvinnuþýður í þröngum beygjum á brautinni í Mónakó. Valtteri Bottas endaði 11. og Felipe Massa 12.

Rosberg setti hraðasta hringinn í annarri lotu, 0,013 hraðari en Hamilton.

Í annarri lotu duttu út Haas ökumennirnir, Williams ökumennirnir, Kevin Magnussen á Renault og Jenson Button á McLaren.

Þriðja lota

Vélin í bíl Hamilton drap á sér á leiðinni út á brautina. Hamilton komst þó út á brautina aftur.

Eftir fystu atlögu var Ricciardo fljótastur og Rosberg annar. Munurinn var 0,291 sekúndur. Enginn náði að ógna Ricciardo í loka atlögunni.

Hér fyrir neðan má sjá öll helstu úrslit helgarinnar á gangvirku brautarkorti.


Tengdar fréttir

Hamilton og Rosberg hreinsa loftið

Lewis Hamilton segir að loftið sé hreint eftir samræður við liðsfélaga sinn, Nico Rosberg. Ætla má að mikil spenna hafi skapast á milli ökumannanna eftir árekstur þeirra í spænska kappakstrinum.

Max Verstappen vann á Spáni

Max Verstappen á Red Bull vann sinn fyrsta kappakstur. Kimi Raikkonen varð annar og Sebastian Vettel varð þriðji.

Red Bull brýnir hornin í Mónakó

Lewis Hamilton varð fljótastur á Mercedes á fyrri æfingunni fyrir Mónakó kappaksturinn í gær, Daniel Ricciardo á Red Bull var fljótastur á seinni æfingunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×