Handbolti

Daníel og Magnús töpuðu í Svíþjóð

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Magnús Óli í leik með FH
Magnús Óli í leik með FH vísir/andri marinó
Ricoh HK sem FH-ingarnir Daníel Freyr Andrésson og Magnús Óli Magnússon leika með í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta tapaði í kvöld fyrir Alingsås 30-28.

Ricoh sem lék á heimavelli var 14-10 yfir í hálfleik en gestirnir voru mun sterkari í seinni hálfleik og tryggðu sér sigur.

Daníel stóð stærstan hluta leiksins í marki Ricoh en náði sér ekki á strik. Hann var með 21% markvörslu eða 4 varin skot.

Magnús Óli skoraði 2 mörk fyrir Ricoh sem er með 3 stig eftir 3 leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×