Íslenski boltinn

Daníel Laxdal: Ekki hægt að lýsa þessu með orðum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Daníel Laxdal og félagar eru Íslandsmeistarar.
Daníel Laxdal og félagar eru Íslandsmeistarar. vísir/valli
„Ég get ekki lýst þessu með orðum,“ sagði Daníel Laxdal, miðvörður Stjörnunnar, í viðtali á Stöð 2 eftir sigur á FH í hreinum úrslitaleik um Íslandmeistaratitilinn í knattspyrnu.

Stjarnan vann, 2-1, með marki Ólafs Karls Finsen í uppbótartíma úr vítaspyrnu.

„Það er ótrúlegt að vinna þetta fyrir framan okkar stuðningsmenn hérna sem gerðu þetta eins og heimavöll fyrir okkur. Þetta var erfitt en við misstum aldrei trúna,“ sagði Daníel sem var svo spurður hversu gaman yrði hjá Stjörnumönnum í kvöld.

„Það verður allt í lagi held ég bara,“ sagði hann léttur og kátur.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×