Fótbolti

Dani Alves á förum frá Barcelona

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Alves er líklega á förum til Juventus.
Alves er líklega á förum til Juventus. vísir/getty
Barcelona hefur staðfest að brasilíski hægri bakvörðurinn Dani Alves sé á förum frá félaginu í sumar.

Alves, sem er 33 ára, á ár eftir af samningi sínum við Barcelona en hefur beðið um að fá að yfirgefa félagið áður en samningurinn rennur út.

Alves hefur m.a. verið orðaður við Manchester United, Paris Saint-Germain og Juventus en líklegast þykir að hann gangi til liðs við síðastnefnda liðið.

Alves kom til Barcelona frá Sevilla árið 2008 og hefur síðan þá leikið tæplega 400 leiki fyrir Katalóníuliðið.

Alves hefur unnið allt sem hægt er að vinna með Barcelona, þ.á.m. spænska meistaratitilinn sex sinnum og Meistaradeild Evrópu í þrígang.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×