Danaleikurinn notaður til að svara spurningum Stefán Árni Pálsson skrifar 13. júní 2013 06:45 Sigurður Ragnar Eyjólfsson
Sigurður Ragnar Eyjólfsson mun nota vináttulandsleikinn gegn Dönum til að fá svör við ákveðnum spurningum varðandi liðið. Þjálfarinn mun síðan í framhaldinu af því velja 23 manna lokahóp fyrir EM í Svíþjóð. Ísland leikur vináttulandsleik gegn Dönum ytra þann 20. júní en leikurinn er hluti af undirbúningi liðsins fyrir lokakeppni Evrópumótsins, sem fram fer í Svíþjóð frá 10. til 28. júlí. Íslenska landsliðið hefur ekki náð góðum úrslitum að undanförnu en liðið tapaði til að mynda fyrir Skotum, 3-2, á Laugardalsvelli 1. júní. Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari þarf að nota tímann vel fram að móti til að slípa saman liðið. Ísland er í eins konar dauðariðli á mótinu en Þýskaland, Noregur og Holland eru með þeim í riðli. „Hópurinn er þannig saman settur að við fáum Katrínu Ómarsdóttir inn í liðið á ný eftir að hún meiddist í síðasta landsliðsverkefni með okkur. Liðið hefur verið án hennar síðan í mars og það verður gott að fá hana til baka.“Vil prófa aðra leikmenn Sif Atladóttir og Edda Garðarsdóttir verða ekki með liðinu gegn Dönum. „Sif Atladóttir er meidd og mun ekki taka þátt í þessu verkefni. Hún er bara ekki nægilega tilbúin og ef ég myndi tefla henni fram myndi það minnka líkurnar á að hún yrði með í lokakeppninni. Hún er með bólgur nálægt lífbeininu og við viljum ekki taka neinar áhættur með hana. Edda Garðarsdóttir fær frí frá þessu verkefni svo ég geti prófað aðra leikmenn fyrir komandi átök.“ Tveir nýliðar koma inn í landsliðshópinn fyrir leikina gegn Dönum. „Það er alltaf gaman að sjá nýjar stelpur koma inn í liðið en Anna Björk Kristjánsdóttir og Guðmunda Brynja Óladóttir verða með hópnum í Danmörku. Þær hafa verið að standa sig sérstaklega vel. Við erum síðan einnig að fara að skoða Þórunni Helgu Jónsdóttur hjá Advaldsnes en hún hefur verið að fá virkilega góða dóma úti að undanförnu. Þetta er verulega spennandi hópur fyrir okkur til að skoða og vonandi færumst við nær þeim lokahóp sem við förum með út til Svíþjóðar.“Danir með eitt besta lið í heimi Sigurður Ragnar mun nota næstu vikur til að velja 23 manna hóp sem fer með liðinu á lokakeppnina í Svíþjóð. Þar af eru þrír markverðir. „Við hlökkum mikið til að takast á við Dani, sem eru með frábært lið, en Ísland hefur aðeins náð að vinna liðið einu sinni í sögunni. Þetta verður erfitt og mjög krefjandi verkefni en jafnframt skemmtilegt en liðin spila mjög ólíkan fótbolta. Danir eru með eitt besta lið í heiminum að halda boltanum innan liðsins. Ég mun síðan nota þennan leik til að svara ákveðnum spurningum varðandi lokahópinn sem fer út.“
Fótbolti Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Eins og að fá spark frá hesti beint í brjóstkassann Fótbolti Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Körfubolti Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Íslenski boltinn Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Enski boltinn Dagskráin: Íslensku strákarnir mæta Messi og félögum Sport Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Körfubolti Fleiri fréttir Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Dumfries skrifar undir hjá Real Madrid Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Ísland mætir heimsmeisturum með nokkurra klukkutíma millibili Eins og að fá spark frá hesti beint í brjóstkassann Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Rice verður varafyrirliði enska landsliðsins á HM FIFA: Fær ekki að dæma á HM vegna komubannsins Olise með þrennu en Mbappé náði ekki að jafna markametið Gakpo skoraði tvö mörk í fimmtugasta landsleiknum Skotar svara fyrir sig eftir norskar ásakanir um svikin loforð Wiegman sendi kveðju til Íslands: „Gangi ykkur vel“ Platini með sakamálaákæru á hendur forseta FIFA Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM HM-dómara neitað um inngöngu í Bandaríkin Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega Eriksen kominn heim og einbeitir sér að fótbolta með krökkunum Á HM eftir „grófa“ leiki með KR í Bestu deildinni Van Persie rekinn frá uppeldisfélaginu Svona var fundur Íslands fyrir leikinn við heimsmeistarana Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Hetjunni haldið í yfirheyrslu í sjö tíma við komuna á HM Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Löggan þorði ekki að þiggja miða HM-minning: Fékk ekki þrennuna sína fyrr en þrjátíu árum eftir dauða sinn Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Sjá meira