Sport

Dana White: Conor verður ekki með á UFC 200

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Dana White og Conor á meðan allt lék í lyndi.
Dana White og Conor á meðan allt lék í lyndi. vísir/getty
Conor McGregor verður ekki með á UFC 200 bardagakvöldinu í Las Vegas. Þetta segir Dana White, forseti UFC, í samtali við TMZ í dag.

Conor greindi frá því á Twitter í morgun að hann myndi mæta Nate Diaz á UFC 200 bardagakvöldinu í Las Vegas 9. júlí og þakkaði White og Lorenzo Fertitta fyrir að koma því í kring.



En miðað við orð White er Conor að fara með fleipur.

„Þetta er ekki satt. Við höfum hvorki talað við Conor né umboðsmanninn hans frá blaðamannafundinum á föstudaginn. Ég veit ekki af hverju hann setti þetta inn á Twitter,“ sagði White við TMZ.

„Ég veit ekki hversu oft ég þarf að endurtaka að það verður ekkert af bardaganum til að fólk fari að trúa því.“

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×