Sport

Dana hótar að taka beltið af Conor

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Conor og Dana ásamt beltinu sem Conor gæti misst.
Conor og Dana ásamt beltinu sem Conor gæti misst. vísir/getty
Þó svo forseti UFC, Dana White, hafi opnað hurðina fyrir endurkomu Conor McGregor á UFC 200 í gær þá mun hann grípa til aðgerða ef Conor þiggur ekki boð hans.

Eins og heimurinn veit þá tilkynnti Conor á Twitter á þriðjudag að hann væri hættur í MMA. Fjórum tímum síðar lýsti White því yfir að hann myndi ekki keppa á UFC 200.

Ástæðan var ekki sú að hann væri hættur heldur að hann hefði neitað að koma til Las Vegas um helgina og taka þátt í kynningarstarfi.

Sjá einnig: Dana að opna dyrnar fyrir Conor

McGregor er heimsmeistari í fjaðurvigt en ætlaði að keppa aftur í sumar gegn Nate Diaz í veltivigt. Ekki bardagi um belti.

Á sama kvöldi áttu Jose Aldo og Frankie Egdar að keppa um bráðabirgðabeltið í fjaðurvigtinni og réttinn að mæta McGregor. Ef Conor stendur við það að hætta þá munu Aldo og Edgar keppa um beltið hans Conor en ekki bráðabirgðabeltið.

„Svona er staðan. Conor þarf að ákveða sig almennilega hvort hann sé hættur eða ekki. Hann þarf líka að taka ákvörðun fljótt. Ef hann er hættur þá munu Aldo og Edgar keppa um beltið hans,“ sagði White en trúir hann því að Conor sé hættur?

„Nei, ég trúi því ekki.“

MMA

Tengdar fréttir

Conor fær ekki að keppa á UFC 200

Hlutirnir gerðust hratt hjá Conor McGregor í gærkvöldi. Nokkrum tímum eftir að hann tilkynnti á Twitter að hann væri hættur sagði Dana White, forseti UFC, að hann myndi ekki keppa á UFC 200.

Heimspressan fjallar um McGregor

Hvort sem Conor McGregor stendur við Twitter-færslu sína er ljóst að hún hefur vakið gríðarlega athygli.

Conor segist vera hættur

Conor McGregor staddur á Íslandi og tilkynnti þetta á Twitter-síðu sinni í kvöld.

Hvað tekur nú við hjá Conor?

Írinn Conor McGregor segist vera hættur í MMA og mun ekki keppa á UFC 200 í sumar. Það er mikið undir hjá UFC að fá hann til baka. Conor æfir á Íslandi með Gunnari Nelson þessi dægrin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×