Sport

Dana að opna dyrnar fyrir Conor

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Conor McGregor.
Conor McGregor. vísir/getty
Það er enn möguleiki á því að Conor McGregor taki þátt á UFC 200 eftir allt saman.

Forseti UFC, Dana White, hefur nefnilega opnað dyrnar fyrir McGregor í dag þó svo hann hafi hent honum úr bardagakvöldinu í gær.

Það gerði hann þar sem Conor neitaði að koma til Las Vegas um helgina og taka þátt í kynningarstarfi fyrir UFC 200. Áður en Dana greindi frá því sagði Conor á Twitter að hann væri hættur. Það stendur enn.

„Hann sagðist ekki vilja koma. Hann er bara á Íslandi að æfa. Ég sagði honum að hann yrði að koma því það væri allt klárt í kynningartökur og við erum búnir að eyða helling af peningum í þetta,“ sagði White en viðræður hans og Conor um málið fóru aldrei út í leiðindi.

„Það var aldrei rifist. Þeir vildu færa þetta fram í maí en það er ekki hægt. Það tala allir um að hann fái einhverja sérmeðferð hjá mér. Það er vissulega rétt að hann kemst upp með margt hjá okkur enda stendur hann alltaf við sitt. Hann var ekki að gera það núna og því varð ég að draga hann úr bardagakvöldinu.“

Dana hafnar þeim sögusögnum að þarna sé deila um peninga á ferðinni. Conor sé ánægður með það sem hann sé að fá.

„Samband okkar er ekki skaddað. Ég er ekki einu sinni reiður,“ segir White en hann er búinn að opna dyrnar fyrir Conor og hann getur enn bjargað málunum kjósi hann að gera svo.

„Ef hann hringir í mig eftir þetta viðtal þá myndum við keyra þetta áfram fyrir UFC 200.“

MMA

Tengdar fréttir

Conor fær ekki að keppa á UFC 200

Hlutirnir gerðust hratt hjá Conor McGregor í gærkvöldi. Nokkrum tímum eftir að hann tilkynnti á Twitter að hann væri hættur sagði Dana White, forseti UFC, að hann myndi ekki keppa á UFC 200.

Heimspressan fjallar um McGregor

Hvort sem Conor McGregor stendur við Twitter-færslu sína er ljóst að hún hefur vakið gríðarlega athygli.

Conor segist vera hættur

Conor McGregor staddur á Íslandi og tilkynnti þetta á Twitter-síðu sinni í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×