Það er komið að því! Stöð 2 gat ekki beðið og ætlar að vera með sérstaka forsýningu á fyrsta þætti af Dallas á föstudaginn klukkan 20:50.
Landsmenn sátu límdir við sjónvarpsskjáina á miðvikudagskvöldum snemma á níunda áratugnum og fylgdust með skrautlegu lífi Ewing fjölskyldunnar á Southfork búgarðinum í Dallas. Nánast hver einasti landsmaður fylgdist með þáttunum árum saman og var um fátt annað rætt á kaffistofum landsins en framvindu þáttanna. Upphaflega stóð til að sýna eingöngu fyrstu þáttaröðina hér á landi, en strax varð ljóst að vinsældirnar væru á þeim skala að ekki yrði aftur snúið. Og það var ekki bara hér á landi sem þættirnir nutu vinsælda. Þátturinn þegar J.R. var skotinn er í öðru sæti yfir það sjónvapsefni sem mest áhorf hefur hlotið í bandarískri sjónvarpssögu, en yfir 41 miljón áhorfenda horfðu á þáttinn. Þættirnir áttu líka stóran þátt í að breyta sjónvarpslandslaginu þar sem Dallas var fyrsta sápuóperan sem sýnd var á besta sýningartíma í Bandaríkjunum. Sýningum lauk svo árið 1991, eftir að 13 þáttaraðir höfðu verið sýndar og þættirnir alls 357 talsins.
Og nú eru þau væntanleg aftur á skjáinn. Glænýir þættir þar sem Bobby, J.R., Sue Ellen, Lucy og Ray snúa aftur. Synir bræðranna, þeir John Ross og Christopher eru hér í forgrunni og sem fyrr er það baráttan um yfirráð í Ewing olíufyrirtækinu sem allt hverfist um. Tuttugu ár eru liðin frá því við skildum við Ewing-fjölskylduna, en framleiðendur og handritshöfundar höfðu það að markmiði að gera gamla og nýja tímanum jafn hátt undir höfði. Fjölskyldudrama af bestu gerð þar sem ástir og átök eru alsráðandi.