Skoðun

Dagurinn þegar Bandaríkin réðust á sjálf sig

Sölvi Jónsson skrifar
Þann 11. september fyrir fimmtán árum síðan hrundu þrír turnar í New York (tvíburaturnarnir og turn 7) vegna þess að turnarnir voru sprengdir (controlled demolition). Yfir 3.000 manns voru myrtir og í stríði Bandaríkjanna, sem á eftir fylgdi gegn hryðjuverkum, hafa minnst 1,3 milljónir manna verið myrtar. Þetta eru varlega áætlaðar tölur fyrir Írak, Afganistan og Pakistan frá árinu 2015 (sumir segja að tala látinna sé yfir 4 milljónir). Það verður ekki betur séð en 11. september hafi verið í boði hergagnaiðnaðarins til að hefja ömurleg og fullkomlega ónauðsynleg stríð. Til hvers að framleiða vopn ef þau eru aldrei notuð?

Við eigum víst að trúa því (og flestir trúa því reyndar því miður) að þennan dag hafi þrír stálstyrktir turnar hrunið vegna elda. Hvorki fyrr né síðar í sögunni hefur þetta gerst. Þennan dag hrundu sem sagt ekki einn heldur þrír turnar af þessari ástæðu.

Turn 7 hrundi sjö tímum eftir að seinni tvíburaturninn hrundi. Turn 7 fékk ekki flugvél inn í sig heldur brak úr tvíburaturnunum yfir sig. Turninn var 47 hæðir og það loguðu eldar á einangruðum stöðum á 10 hæðum. Fall turnsins tók innan við sjö sekúndur og yfir 30 metrar af turninum (átta hæðir) féllu í frjálsu falli, sem þýðir að það var engin fyrirstaða, og slíkt getur aðeins gerst í controlled demolition.

Opinbera samsærisskýringin „pönnukökukenningin“ svokallaða, sem á að skýra hrun turnanna þriggja, fellur um sjálfa sig vegna þess að steypan í turnunum varð að dufti. Í braki turnanna var engar heillegar hæðir að sjá sem áttu þá að hafa fallið hver ofan á aðrar eins og dómínókubbar. Slíkt brak hefði átt að vera ígildi a.m.k. 20 hæða í tvíburaturnunum. Ef turnarnir hefðu hrunið vegna elda þá hefði það sennilega gerst þannig að turnarnir hefðu hallað smátt og smátt til hliðar út frá skemmdunum þar sem flugvélarnar hæfðu þá og hluti af turnunum fallið til jarðar.

Í stað þess þá hrundu turnarnir í heild sinni og féllu að mestu í sitt eigið stæði eins og gerist í controlled demolition. Eldar út frá flugvélaeldsneyti geta ekki brætt stál enda voru turnarnir beinlínis hannaðir til þess að þola að fá flugvél inn í sig. Myndir frá vettvangi glæpsins sýna sveigða/brædda/klippta stálstólpa.

Sönnunargögnunum var hins vegar snarlega eytt – stálið selt í bræðslu, aðallega til Kína. Leifar af sprengiefni (nano-thermite) fundust í rústunum og eldar loguðu undir rústunum svo vikum skipti og mældust þeir nálægt 760 gráðum sem er meiri hiti en myndast við flestallan bruna. Bræðslumark stáls og járns er ca 1.540 gráður. Yfir 100 slökkviliðsmenn sögðust hafa heyrt sprengingar og séð ljósglæringar þegar turnarnir hrundu.

Mjög neyðarlegt hlýtur að teljast þegar fréttakona BBC sagði frá hruni turns 7 í beinni útsendingu um 20 mínútum áður en turninn hrundi. Meira að segja með turninn greinilega uppistandandi á bak við sig. Fréttakonan talaði ofan úr háhýsi. Þetta hefur verið afsakað þannig að menn hafi gert ráð fyrir hruni turnsins vegna elda sem loguðu – og það þrátt fyrir að aldrei í sögunni hafi turn þessarar gerðar hrunið vegna elda.

Heimildir greinarinnar voru að mestu sóttar í netsíðuna:

„Architects and engineers for 9/11 truth“.

Body count: Casualty figures after 10 years of the “War on terror” (grein): https://www.psr.org/assets/pdfs/body-count.pdf

Do the math: Global war on terror has killed 4 million muslims or more (grein): https://www.mintpressnews.com/do-the-math-global-war-on-terror-has-killed-4-million-muslims-or-more/208225/

Twin towers evidence blows away fire collapse theory (grein): https://www1.ae911truth.org/faqs/345-twin-towers-evidence-blows-away-fire-theory.html

Building 7 implosion: The Smoking gun of 9/11 (grein): https://www1.ae911truth.org/home/344-building-7-implosion-the-smoking-gun-of-911.html

118 Witnesses: The Firefighters´ testimony to explosions in the Twin Towers (grein): https://www.journalof911studies.com/articles/Article_5_118Witnesses_WorldTradeCenter.pdf

 

9/11: Explosive evidence - Experts speak out (heimildarmynd): https://www.youtube.com/watch?v=4tTMMNTisBM

North tower exploding (myndband): https://www.youtube.com/watch?v=hSApOavkHg8

Cutter charges in the north tower of the world trade center (myndband): https://www.youtube.com/watch?v=zoAD8HlrLZg

Thermite used on 9/11 (myndband): https://www.youtube.com/watch?v=3-jeQmW5wiA&feature=youtu.be

BBC reported building 7 collapse 20 minutes before it fell (myndband): ENHANCED VERSION: News Reports WTC7 Fell Before It Happens!








Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×