Eitt heitasta fréttaefni dagsins í heimspressunni var barátta íslenskrar stúlku um nafnið sitt. Stúlkan fær ekki að heita Blær og hefur gegnum tíðina staðið í miklu stappi við mannanafnanefnd. Deilan rataði fyrir skemmstu til dómstóla.
„Við erum einmitt búnar að vera að tala við CNN og NBC," sagði Björk Eiðsdóttir, móðir Blævar og ritstjóri Séð og Heyrt, þegar Vísir náði tali af henni. „Þetta eru ótrúleg viðbrögð. Það er meira að segja komið í sjónvarpið á Fox News eitthvert debate um málið." Hér má nálgast umrætt myndskeið.
Fréttir af málinu hafa verið með þeim allra mest lesnu á fjölmörgum fréttamiðlum í heiminum og rötuðu á forsíður víða, m.a. í Bandaríkjunum, Rússlandi og Indlandi. „Þannig að hún fór inn á MSN.com í dag og sá sjálfa sig beint fyrir ofan Kim Kardashian. Það var hápunktur dagsins," segir Björk um dóttur sína.
Við erlendu fréttirnar hafa í mörgum tilvikum skapast mjög líflegar umræður í athugasemdakerfinu. Athugasemdir hlaupa á þúsundum þar sem fólk hneykslast á því að stjórnvöld fái að velja hvaða nöfn fólk má bera í landinu. Bandaríkjamönnum virðist upp til hópa finnast það fáránleg hugmynd.
„Pæliði í þessu, áður en maður velur nafn á barnið sitt verður maður að athuga hvort nafnið er á lista sem ríkisstjórnin hefur samþykkt. Svona eru reglurnar á Íslandi," eru inngangsorð í frétt á Fox news.
Og fréttakonan heldur áfram og ræðir um nafnið Blær. „Þetta er ekki móðgandi nafn eða nafn sem veldur vandræðum og er stafað með íslenskum stöfum. Svo það er hreinlega engin ástæða fyrir því að banna henni að eiga þetta nafn. Af hverju ætti ríkisstjórninni að vera kleift að handstýra því hvaða nöfn fólk má bera. Þetta nær bara ekki nokkurri átt."
Björk Eiðsdóttir, móðir Blævar tekur í sama streng. „Mér finnst það náttúrlega eðli málsins samkvæmt frekar fáránlegt. Ég set alveg spurningarmerki við nöfn sem geta orðið börnum virkilega til ama. Það er kannski eðlilegt að það séu einhvers konar mörk, en það væru þá nöfn sem eru virkilega skaðleg. En nöfn sem eru hljómfögur og passa við beygingarkerfið og stafsetningu, mér finnst rosaleg geðþóttaákvörðun að banna þau," segir Björk.
Málið er nú fyrir dómstólum og er niðurstöðu að vænta í febrúar næstkomandi. „Aðalmeðferð málsins verður 21. janúar og eftir það hafa þeir fjórar vikur," segir Björk. Málið er fyrir héraðsdómstólum núna en mæðgurnar eru ákveðnar í að fara með það fyrir Hæstarétt ef það tapast í héraði.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Tillitssemi gagnvart erlendum kröfuhöfum varð fráfarandi ríkisstjórn að falli í síðustu kosningum. Þetta segir Jón Daníelsson hagfræðingur sem stýrir rannsóknarstofnun við London School of Economics.
Meira
Lögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson hefur verið áminntur af Lögmannafélagi Íslands fyrir að hafa brotið gróflega gegn siðareglum félagsins með framkomu sinni í garð lögmanna Lex lögmannsstofunnar. Um þ...
Meira
Héraðsskólinn á Laugarvatni, þar sem stjórnarssáttmálinn var undirritaður í dag, er táknmynd alþýðumenntunar Íslendinga en líka húsið þar sem Halldór Laxness skrifaði skáldsöguna Sjálfstætt fólk.
Meira
Allt lítur út fyrir að einungis þrjár konur muni setjast í níu manna ríkisstjórn Sjálfstæðis- og Framsóknarflokksins. Líklegt er talið að Kristján Þór Júlíusson oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðaust...
Meira
Framsóknarflokkurinn fer niður fyrir 20 prósent fylgi í nýjustu könnun MMR á tímabilinu 14. til 17 maí og mælist nú með 19,9%. Flokkurinn var með 22,4% í síðustu könnun fyrirtækisins. Fylgi Sjálfstæði...
Meira
Samkvæmt upplýsingum Vísis ber lögreglu að rannsaka öll mál þar sem að grunur leikur á að dýr hafi verið beitt ofbeldi. Eins og greint var frá fyrr í dag fannst köttur sjö ára gamallar telpu á hafnar...
Meira
Ljósmyndari Viðskiptablaðsins náði ljósmynd af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni og aðstoðarmanni hans á leiðinni heim frá blaðamannafundinum á Laugavatni í morgun.
Meira
Vestmannaeyjabær var í Héraðsdómi Suðurlands í dag dæmdur til að greiða íbúa í bænum rúmlega þrjár milljónir króna í skaðabætur vegna uppgraftar á gosminjum eftir eldgosið í Vestmannaeyjum árið 1973.
Meira
Líkið sem fannst á Kaldbaksvík á Ströndum í síðustu viku er af Gunnari Gunnarssyni, fæddum 1962. Hann féll útbyrðis af Múlabergi SI-22 djúpt út af Húnaflóa þann 12 desember síðastliðinn. Þetta er niðu...
Meira
Foreldrar Bjarna Benediktssonar segjast ekki hafa hvatt hann í pólitíska átt að neinu leiti. "Að Bjarni skildi hafa farið þessa leið kemur okkur í rauninni á óvart“, segir móðir hans.
Meira
Foreldar Sigmundar Davíðs voru ósammála um hvort sonurinn myndi feta pólitíska veginn. Faðir hans segist alla tíð hafa verið viss um það en móðirin ekki.
Meira
Köttur sjö ára stúlku sem hafði verið týndur í þrjá daga fannst dauður á hafnarsvæðinu Bolungarvík í gær en svo virðist sem kötturinn hafi verið skotinn til dauða með byssu.
Meira
"Við munum fara yfir málin og sjá með hvaða hætti var reynt að takast á við þau og endurmeta það sem ekki hefur skilað tilætluðum árangri,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, verðandi forsætisr...
Meira
"Það sem slær mann algjörlega við fyrstu yfirsýn er að þetta er svona nokkuð almennt orðað,“ segir Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri Grænna, um stjórnarsáttmálann sem Sigmundur Davíð Gunnlau...
Meira
"Ég vil óska væntanlegri ríkisstjórn velfarnaðar í krefjandi störfum,“ segir Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar. Hann segir að Björt framtíð muni reyna að verða að góðu liði ti...
Meira
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins héldu stutt erindi fyrir fréttamenn á fundi í Héraðsskólanum á Laugarvatni áður en þei...
Meira
"Krónan verður gjaldmiðill Íslendinga um fyrirsjáanlega framtíð," segir í stjórnarsáttmála Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson, formenn ...
Meira
Þessa dagana stendur yfir mikill annatími hjá sauðfjárbændum um land allt. Sauðburðurinn stendur sem hæst og fólk þarf að vakta kindurnar allan sólarhringinn, því ærnar þurfa í flestum tilfellum hjálp...
Meira
Ólafur Ragnar Grímsson er ánægður með að Framsóknarflokki og Sjálfstæðisflokki hafi tekist að mynda ríkisstjórn á svo skömmum tíma og raun ber vitni.
Meira
Blaðamannafundur Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins, og Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, í gamla Héraðskólahúsinu á Laugarvatni verður í beinni útsendi...
Meira
"Þetta er eitt af glæsilegustu og sögulegustu húsum landsins auk þess er þetta fallegur staður," segir Halldór Páll Halldórsson, skólameistari Menntaskólans að Laugarvatni.
Meira