Dagur og refirnir frá Berlín gefa ekkert eftir

Vísir Handbolti 15. febrúar 2012 20:19
Alexander Petersson gat ekki spilað í kvöld vegna meiðsla.
Alexander Petersson gat ekki spilað í kvöld vegna meiðsla. Mynd/E.Stefán
Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Berlín skrifar:
Vísir fékk stemninguna beint í æð í Max-Schmeling-höllinni í kvöld þar sem að heimamenn í Füchse Berlin unnu góðan sigur á grannliðinu Magdeburg, 24-20, í þýsku úrvalsdeildinni.

Füchse Berlin styrkti þar með stöðu sína í þýsku úrvalsdeildinni en gott gengi liðsins þykir varla fréttnæmt lengur. Dagur Sigurðsson er þjálfari liðsins og hefur náð frábærum árangri, bæði í fyrra og nú aftur í ár. Kiel virðist vera í algjörum sérflokki á toppi deildarinnar en í baráttunni stendur Füchse fremst og ætlar greinilega ekkert að gefa eftir á þeim vettvangi.

Alexander Petersson leikur með liðinu en er því miður frá vegna meiðslanna sem tóku sig upp í leik með íslenska landsliðinu á EM í Serbíu. Hann mátti því sætta sig við að sitja í borgaraklæðum í stúkusæti, rétt fyrir aftan varamannabekk sinna manna.

Björgvin Páll Gústavsson er annar tveggja markvarða Magdeburg og er samkeppnin við hollenska landsiðsmarkvörðinn Gert Eijlers hörð. Sá síðarnefndi fékk tækifærið í byrjunarliðinu í kvöld og átti góðan leik. Björgvin Páll kom aðeins við sögu í einu vítakasti - sem honum tókst ekki að verja. Meira var það því miður ekki í þetta skiptið.

Þess má reyndar geta að þeir Björgvin og Eijlers munu mætast á vellinum þegar að Ísland og Holland eigast við í undankeppni HM 2013 í vor. Annar lykilmaður í hollenska landsliðsinu var reyndar á vellinum í kvöld - Mark Bult, öflug örvhent skytta hjá Füchse Berlin.


Markvörðurinn Silvio Heinevetter
Markvörðurinn Silvio Heinevetter Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Skemmtikrafturinn Silio
Heimamenn byrjuðu leikinn af krafti og náðu með öflugum varnarleik að komast í 5-1 forystu eftir sjö mínútur. Gestirnir náðu þó að bæta sóknarleikinn og koma sér betur inn í leikinn en Füchse Berlin leiddi allt þar til í hálfleik, 13-9.

Markvörðurinn Silvio Heinevetter er gosi - skrautlegur karakter eins og stundum er sagt. Afar skondið atvik átti sér stað á tíundu mínútu þegar að vörn Füchse fékk dæmt á sig vítakast. Heinevetter kastaði boltanum að dómranum eins og eðlilegt er en dómarinn var ekki að fylgjast með - og fékk boltann í hausinn. Heinevetter baðst innilegrar afsökunar en varði svo auðvitað vítið.

Þó svo að um algert óviljaverk var að ræða voru heimamenn ekki ánægðir með dómara leiksins, þá Baumgart og Wild. Þeir lögðu snemma stranga línu og fengu menn því að komast upp með lítið. Dagur var óhræddur við að láta í ljós óánægju sína með dóma sem honum fannst ósanngjarnir, eins og hann hefur ávallt gert.

Þess má geta að það verður enginn svikinn af því að fylgjast með Heinevetter heilan leik. Tilþrifin eru slík og innlifun hans í leikinn með ólíkindum.


Dagur Sigurðsson.
Dagur Sigurðsson. Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Dagur með sinn eigin stíl á hliðarlínunni
Dagur er líflegur á hliðarlínunni en ólíkur kollegum sínum sem íslenska þjóðin þekkir vel - til að mynda þá Guðmundi Guðmundssyni og Alfreði Gíslasyni. Dagur er yfirvegaður, segir sínum mönnum til og skammar þá eða hrósar ef þannig ber við. Það fyrrnefnda var ef til vill meira áberandi. Dagur fagnar helst ekki mörkum, flottum varnartilburðum eða markvörslu. Fagmennskan er í fyrirrúmi og greinilegt að hann lætur tilfinningarnar ekki bera sig ofurliði.

Það dró saman með liðunum í upphafi seinni hálfleiks. Gestirnir frá Magdeburg stórbættu varnarleikinn sinn og uppskáru eftir því nokkur auðveld mörk. Dagur ákvað að hressa upp á sóknarleik sinn með því að setja inn spænska leikstjórandann Iker Romero og hann átti eftir að draga vagninn. Hann skoraði þrjú mörk í röð fyrir sína menn um miðbik hálfleiksins og sá til þess að refirnir væru enn með undirtökin.

Munurinn var enn þrjú mörk, 20-17, þegar fimm mínútur voru eftir en eins og sjá mátti á tölunum var það markvarslan og varnarleikurinn var í fyrirrúmi í kvöld. Þeir Heinevetter og Eijlers voru í stuði og varnarleikur liðanan sterkur. En heimamenn voru með undirtökin, með Romero enn í fyrirrúmi í sókninni, héldu þeim til loka og unnu góðan fjögurra marka sigur.

Þess verður að geta sérstaklega að innkoma spænska refsins var með ólíkindum í kvöld. Dagur vissi greinilega upp á hár hvað hann var að fá þegar hann lokkaði hann til sín í þýsku höfuðborgina.


Dagur og refirnir frá Berlín gefa ekkert eftir
Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Frábær umgjörð
Umgjörðin á leiknum í kvöld var glæsileg - vægast sagt. Um níu þúsund manns voru í Max-Schmeling-höllinni og þar af fjölmargir stuðningsmenn Magdeburg. Aðeins um 170 kílómetrar eru á milli borganna og því um hálfgerðan grannaslag að ræða í hinni stóru þýsku úrvalsdeild. Langflestir voru vitanlega á bandi heimamanna og létu þeir afar vel í sér heyra.

Kynningin á leikmönnum fyrir leik var mikil sýning, þar sem meðal annars komu við sögu klappstýrur, lukkudýr, eiturhress kynnir og eldvörpur. Þetta kunnu áhorfendur að meta og tóku þeir vel undir - enda tilgangurinn. Þetta gaf tóninn fyrir leikinn sem reyndist svo hin besta skemmtun. Þar sást svo ekki var um villst að þýska úrvalsdeildin er sú stærsta í heimi.

Fleiri fréttir - Handbolti

Handbolti 24. maí. 2012 10:16

Kvennalandsliðið mætir U-16 liði karla

A-landslið kvenna í handbolta mun í kvöld leika æfingaleik gegn íslenska piltalandsliðinu ...  

Meira
Handbolti 24. maí. 2012 08:00

Snorri Steinn: Mætum óhræddir til leiks

Úrslitin í Meistaradeild Evrópu í handbolta ráðast um helgina. Þá fara fram undanúrslit og...  

Meira
Handbolti 24. maí. 2012 07:30

Óli er maður stóru leikjanna

Ólafur Stefánsson mun mæta sínum gömlu félögum í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu á la...  

Meira
Handbolti 23. maí. 2012 22:39

Heimir Óli búinn að semja við GUIF

Haukamaðurinn Heimir Óli Heimisson er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við sænska...  

Meira
Handbolti 23. maí. 2012 19:40

Fínn leikur Hannesar dugði ekki til sigurs

Íslendingaliðið Hannover-Burgdorf varð að sætta sig við tap, 35-37, á heimavelli gegn Gumm...  

Meira
Handbolti 22. maí. 2012 23:30

Guðmundur grillar ofan í stuðningsmenn Löwen

Guðmundur Guðmundsson, þjálfari Rhein-Neckar Löwen, og lærisveinar hans verða með grillspa...  

Meira
Handbolti 22. maí. 2012 20:30

Þrjú ný félög í N1-deild kvenna

Alls verða tólf lið í N1-deild kvenna næsta vetur þar sem þrjú ný félög hafa boðað þáttöku...  

Meira
Handbolti 22. maí. 2012 13:00

Anton til Danmerkur

Anton Rúnarsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við danska úrvalsdeildarfélagið Sö...  

Meira
Handbolti 21. maí. 2012 20:00

Noregur, Króatía og Pólland berjast um EM 2016

Þrjú lönd eru enn í baráttunni um að halda EM í handbolta árið 2016. Það verður ákveðið í ...  

Meira
Handbolti 21. maí. 2012 13:30

Lövgren lofar Ólaf og Alexander

Úrslitin í Meistaradeild Evrópu ráðast í Köln í Þýskalandi um helgina og hefur Svíinn Stef...  

Meira
Handbolti 21. maí. 2012 07:00

Þórir: Togaði í að fá að spila í Meistaradeildinni og að vinna titla

Þórir Ólafsson og félagar í Vive Targi Kielce urðu um helgina pólskir meistarar í handbolt...  

Meira
Handbolti 20. maí. 2012 21:36

Sunneva Einarsdóttir ver mark Stjörnunnar á næsta tímabili

Handknattleiksdeild Stjörnunnar hefur gert samning við markvörðinn Sunnevu Einarsdóttir en...  

Meira
Handbolti 20. maí. 2012 20:30

Stefnir allt í fullkomið tímabil hjá Kiel | 32 sigrar í röð

Það virðist ekkert geta komið í veg fyrir það að þýska handknattleiksliðið Kiel skrái sig ...  

Meira
Handbolti 20. maí. 2012 19:21

Jón Heiðar gengur til liðs við ÍR

Handknattleiksmaðurinn Jón Heiðar Gunnarsson hefur ákveðið að ganga til liðs við ÍR og mun...  

Meira
Handbolti 20. maí. 2012 07:00

Þórey og Rut rétt misstu af bronsinu

Íslensku landsliðskonunar Rut Jónsdóttir og Þórey Rósa Stefánsdóttir urðu í fjórða sæti me...  

Meira
Handbolti 19. maí. 2012 19:42

Fimm mörk Kára ekki nóg á móti Hamburg - mikilvægt hjá Bergischer

Kári Kristjánsson skoraði 5 mörk fyrir HSG Wetzlar þegar liðið tapaði 26-28 á heimavelli f...  

Meira
Handbolti 19. maí. 2012 17:02

AG í úrslitaleikinn um titilinn - Ólafur mjög góður í sigri á Kolding

AG Kaupmannahöfn tryggði sér sæti í úrslitaeinvíginu um danska meistaratitilinn í handbolt...  

Meira
Handbolti 19. maí. 2012 14:28

Þórir pólskur meistari í handbolta

Þórir Ólafsson og félagar í Vive Targi Kielce urðu nú áðan pólskir meistarar í handbolta e...  

Meira
Handbolti 18. maí. 2012 19:30

Mikilvægur sigur hjá Füchse Berlin

Lærisveinar Dags Sigurðssonar hjá Füchse Berlin færðust í kvöld skrefi nær því að tryggja ...  

Meira
Handbolti 17. maí. 2012 22:45

Þjálfari Rúnars Kárasonar rekinn

Rúnar Kárason fær senn nýjan þjálfara hjá þýska úrvalsdeildarfélaginu Bergischer HC þar se...  

Meira
Handbolti 17. maí. 2012 21:15

Alfreð: Slekk á símanum í 3-4 vikur og sinni garðinum

Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel í Þýskalandi, segir að það sé mikilvægt að hvílast vel þega...  

Meira
Handbolti 17. maí. 2012 16:32

Benedikt Reynir til liðs við Aftureldingu

Mosfellingar hafa fengið liðsstyrk fyrir næsta tímabil í N1-deild karla en Benedikt Reynir...  

Meira
Handbolti 17. maí. 2012 12:45

Sögusagnir í Þýskalandi: Guðmundur að hætta með Löwen

Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari Íslands og þjálfari Rhein-Neckar Löwen, gæti veri...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 20:25

Hrun hjá Löwen í seinni hálfleik

Rhein-Neckar Löwen steinlá fyrir Flensburg á heimavelli í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld, 3...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 19:46

Kiel enn ósigrað í Þýskalandi

Kiel hélt áfram ótrúlegri sigurgöngu sinni í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta með sex mar...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 19:31

Rut og Þórey nálgast bronsið

Þórey Rut Stefánsdóttir og Rut Jónsdóttir skoruðu sitt markið hvor þegar að lið þeirra, Te...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 17:44

Vignir í fjórtán daga bann

Vignir Svavarsson hefur verið dæmdur í tveggja vikna bann vegna rauða spjaldsins sem hann ...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 11:57

Sunna kölluð inn í A-landsliðið

Ágúst Þór Jóhannsson landsliðsþjálfari kvenna í handbolta hefur þurft að gera eina breytin...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 08:00

Pistillinn: Hver er þróun kvennahandboltans?

Eftir að hafa fylgst með undanúrslitum Íslandsmótsins í handknattleik hugsar maður hvert k...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 06:00

Spenntur fyrir landsliðinu

Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, segir að mest spennandi þjálfarastarf á Íslandi sé land...  

Meira
Handbolti 15. maí. 2012 17:16

Gunnar Berg tekur við Stjörnunni

Gunnar Berg Viktorsson mun að óbreyttu taka við þjálfun karlaliðs Stjörnunnar í handbolta....  

Meira
Handbolti 15. maí. 2012 12:30

HK missir Elínu Önnu yfir í FH

Elín Anna Baldursdóttir, markahæsti leikmaður HK í úrslitkeppni N1 deildar kvenna og einn ...  

Meira
Handbolti 14. maí. 2012 22:45

Kjelling tekur þátt í úrslitakeppninni í Katar

Norski landsliðsmaðurinn Kristian Kjelling er staddur þessa dagana í Katar þar sem hann le...  

Meira
Handbolti 14. maí. 2012 18:43

Sigurbergur Sveinsson í Hauka

Sigurbergur Sveinsson hefur gert tveggja ára samning við deildarmeistara Hauka. Hann lék s...  

Meira
Handbolti 14. maí. 2012 17:15

Árni Þór semur við Friesenheim

Örvhenta skyttan Árni Þór Sigtryggsson mun enn á ný söðla um í Þýskalandi í sumar en hann ...  

Meira
Handbolti 14. maí. 2012 13:00

Örn Ingi hættur í FH og farinn í Aftureldingu

Örn Ingi Bjarkason, leikmaður í úrvalsliði N1 deildar karla í handbolta, hefur gert tveggj...  

Meira
Handbolti 13. maí. 2012 19:00

Ágúst Þór búinn að velja landsliðshópinn

Ágúst Þór Jóhannsson, landsliðsþjálfari A-liðs kvenna í handknattleik, hefur valið 20 leik...  

Meira
Handbolti 13. maí. 2012 17:43

Refirnir frá Berlín hökkuðu Sverre og félaga í sig

Lærisveinar Dags Sigurðssonar hjá Füchse Berlin styrktu stöðu sína í þriðja sæti þýsku úrv...  

Meira
Handbolti 13. maí. 2012 16:59

Flottur útisigur hjá Hannover

Íslendingaliðið Hannover-Burgdorf vann góðan útisigur á Hildesheim í dag og reif sig um le...  

Meira
Handbolti 13. maí. 2012 16:52

Sigurjón semur við uppeldisfélagið

ÍR-ingar halda áfram að safna liði fyrir komandi átök í N1-deild karla. Þeir hafa nú samið...  

Meira
Handbolti 13. maí. 2012 12:40

Kiel í litlum vandræðum með Hamburg | Stefnir í fullkomið tímabil

Það stefnir svo sannarlega í fullkomið tímabil hjá lærisveinum Alfreðs Gíslasonar í Kiel e...  

Meira
Handbolti 13. maí. 2012 00:05

Ólafur Bjarki og Stella valin best í handboltanum

Það var mikið um dýrðir í kvöld þegar lokahóf HSÍ fór fram. Þau Ólafur Bjarki Ragnarsson ú...  

Meira
Handbolti 12. maí. 2012 18:36

Flott endurkoma hjá Kára og félögum

Kári Kristján Kristjánsson og félagar í Wetzlar nældu á stig á útivelli er þeir sóttu TuS ...  

Meira
Handbolti 12. maí. 2012 17:33

AG gerði jafntefli í fyrri undanúrslitaleiknum

Dönsku meistararnir í AG gerðu jafntefli, 26-26, í fyrri leik sínum við Kolding í undanúrs...  

Meira
Handbolti 12. maí. 2012 17:21

Gleði á Hlíðarenda - myndaveisla

Valskonur urðu Íslandsmeistarar í handknattleik í dag er þær unnu afar sannfærandi sigur á...  

Meira
Handbolti 12. maí. 2012 16:53

Hrafnhildur: Verð bara betri með árunum

"Ég verð aldrei þreytt á því að lyfta þessum bikar, enda er ég með frekar góða upphandlegg...  

Meira
Handbolti 12. maí. 2012 16:50

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Fram 24-21 | Valur Íslandsmeistari

Valur varð í dag Íslandsmeistari í handknattleik kvenna eftir frábæran sigur á Fram, 24-21...  

Meira
Handbolti 12. maí. 2012 16:29

Rúnar og félagar voru flengdir

Rúnar Kárason skoraði eitt mark þegar lið hans, Bergischer, var flengt af Flensburg með sa...  

Meira
Handbolti 12. maí. 2012 15:40

Einar hættur | Halldór Jóhann tekur við Fram-liðinu

Einar Jónsson, þjálfari kvennaliðs Fram, lýsti því yfir eftir leikinn gegn Val í dag að ha...  

Meira
Handbolti 12. maí. 2012 08:00

Fyrsti oddaleikurinn um titilinn í tíu ár

Það er risaleikur í Vodafone-höllinni klukkan 14.00 í dag þegar Íslandsmeistarar Vals taka...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Sport / Handbolti / Dagur og refirnir frá Berlín gefa ekkert eftir