Handbolti

Dagur fær úrslitaleik á móti Króatíu

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Dagur Sigurðsson á úrslitaleik fyrir höndum.
Dagur Sigurðsson á úrslitaleik fyrir höndum. vísir/getty
Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í þýska landsliðinu í handbolta mæta Króatíu á föstudaginn í úrslitaleik um efsta sætið í C-riðli HM 2017.

Þýskaland vann Hvíta-Rússland fyrr í dag og nú í kvöld vann Króatía stórsigur á Síle, 37-22. Króatíska liðið er búið að vinna alla sína leiki líkt og það þýska.

Lovro Mihic var markahæstur Króata í kvöld með átta mörk en hann skoraði úr öllum átta skotum sínum. Ivan Stevanovic átti stórleik í markinu en hann varði ellefu skot og var með 48 prósent hlutfallsmarkvörslu.

Þýskaland og Króatía eru bæði með átta stig og mætast í hreinum úrslitaleik um efsta sæti riðilsins á föstudaginn. Þýskaland er með miklu betri markatölu og nægir því jafntefli til að ná efsta sætinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×