Innlent

Dagur B.: „Ekki mörg ár síðan miðborginni var spáð dauða“

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Dagur B. Eggertsson.
Dagur B. Eggertsson. vísir/stefán
„Ekki eru mörg ár síðan miðborginni var spáð dauða. Þær raddir heyrast nú ekki,“ segir Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, í stöðuuppfærslu á Facebook-síðu sinni. Í henni svarar hann nokkrum af þeim punktum sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, setti fram í grein á heimasíðu sinni í morgun.

Dagur er sammála ýmsu sem kemur fram í gagnrýni Sigmundar en ósammála öðru. Á meðal þess er hótel við Ingólfstorg sem Sigmundur nefnir. „Þar vill hann nýtt hótel sem byggt yrði eftir gömlum teikningum af Hótel Íslandi, sem brann 1915. Ég held að við eigum að standa vörð um torgin okkar og gera þau líflegri og skemmtilegri. Það er nóg verið að byggja allt í kring,“ skrifar Dagur.

Í greini sinni gagnrýnir Sigmundur Davíð borgaryfirvöld fyrir það hvernig þróun skipulagsmála og framkvæmda í miðborginni hafa verið að undanförnu. Eldri hús þurfi oft að víkja fyrir stál- og glerhýsum sem gjörbreyti ásýnd borgarinnar. Gengur forsætisráðherra svo langt að segja að gamla byggðin í Reykjavík hafi líklega aldrei staðið frammi fyrir jafnmikilli ógn og nú.

Sjá einnig: Sigmundur Davíð: Gamla byggðin í Reykjavík aldrei staðið frammi fyrir jafnmikilli ógn

Borgarstjóri segir rétt að fram undan sé mikil uppbygging í Reykjavík og að vanda þurfi til verka við hana. Hann bendir á að uppbyggingin sé í flestum tilvikum á grundvelli endurskoðaðs skipulags þannig að samhliða nýbyggingum hafi aldrei fleiri gömul hús verið vernduð og endurbyggð.

„Efasemdir Sigmundar um uppbyggingu á Hörpu-reit vekja svo sérstaka athygli. Þar voru ekki gömul hús heldur bensínstöð og Faxaskáli sem var úrelt birgðageymsla sem notuð var sem bílaplan undir það síðasta. Í dag eru þetta óbyggðir reitir eða bílastæði, að ógleymdri holunni við Hörpu. Ríki og Reykjavíkurborg seldu þessar lóðir sameiginlega og eru þær nú í höndum einkaaðla. Og þess má geta að Sigmundur Davíð sjálfur var um tíma varaformaður skipulagsráðs Reykjavíkur og auglýsti ákveðnar skipulagsbreytingar á Hörpu-reitunum, án þess að leggja til á þeim róttækar breytingar,“ skrifar borgarstjóri.

Máli sínu lýkur hann á því að segja að það verði að sýna metnað og virðingu fyrir því sem fyrir er þegar hugða er að uppbyggingu. „Uppbyggingin í kringum Hörpu verður öruggulega ekki óumdeild, frekar en Harpan sjálf, en hún mun sannarlega kallast á við sögu staðarins einsog kostur er og borgin mun gera allt sem í hennar valdi stendur til að hún verði okkur öllum til sóma.“

það er ánægjulegt að fá umræðu um uppbyggingu í borginni. Margir þmt fjölmiðlar hafa óskað eftir viðbrögðum við sjónarmi...

Posted by Dagur B. Eggertsson on Thursday, 27 August 2015

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×