Lífið

Dagur 2 - #nakinníkassa: "Voðalega geta menn leyft sér að sofa lengi“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Almar hefur verið í kassanum í 24 klst.
Almar hefur verið í kassanum í 24 klst. vísir
Almar Atlason, 23 ára myndlistarnemi, ætlar næstu vikuna að dvelja inni í glerkassa í  Listaháskólanum.

Almar er er á sínu fyrsta ári í Listaháskóla Íslands og er verkefnið hluti af lokaverkefni hans í námskeiðinu Leiðir og úrvinnsla.

Hann hefur nú þegar unnið hug og hjörtu þjóðarinnar og hafa þúsundir Íslendinga fylgst með beinni útsendingu úr kassanum á YouTube.

Umræðan er mikil á Twitter og eru notendur að styðjast við kassamerkið #nakinníkassa. Almar er aðeins búinn með einn sólahring og nú eru sex eftir.

Bein útsending





Fleiri fréttir

Sjá meira


×