Handbolti

Dagur: Sjokk fyrir okkur alla

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Þýskalands, bar sig vel eftir að hafa óvænt tapað gegn Katar í 16-liða úrslitum á HM. Þetta var síðasti leikur hans með þýska liðið.

„Þetta er sjokk fyrir okkur alla. Við vorum yfir allan leikinn og þeir komast yfir undir lokin,“ segir Dagur en Katarar skoruðu fjögur síðustu mörk leiksins.

„Við vorum ekki að spila vel en samt hefðum við átt að klára þetta. Er þeir bökkuðu niður í 6/0 vörnina fór maður að sjá ákveðin veikleikamerki hjá okkur. Við misstum daðeins dampinn.“

Eins og áður segir var þetta síðasti leikur Dags með þýska liðið og frábærum ferli hans sem landsliðsþjálfara Þýskalands lauk ekki á þann hátt sem hann hafði óskað.

„Því miður endaði þetta svona. Ég fer svo til Japan um miðjan febrúar. Í millitíðinni fer ég heim til Berlín.“

Það hefur verið mikið að gera hjá Degi á HM og hann náði ekki að sjá neitt af leikjum íslenska liðsins.

„Ég fylgdist með umfjölluninni og sá að þeir fengu góða dóma. Ég held að árangurinn hafi verið mjög góður. Þetta var ungt lið. Mér líst vel á þetta og held að liðið sé á góðri leið,“ segir Dagur en kollegi hans, Guðmundur Guðmundsson, féll einnig úr leik með Dönum í dag.

„Þetta er sjokk fyrir okkur báða en sýnir hvað handboltinn er orðinn jafn. Þetta datt með okkur fyrir ári síðan í Póllandi. Við verðum að sætta okkur við þetta núna,“ segir Dagur en hann ætlar að halda með Kristjáni Andréssyni og sænska liðinu fyrst hann er dottinn út.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×