Handbolti

Dagur: Gaman að ná í þessa medalíu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dagur Sigurðsson fagnar sigri í leikslok.
Dagur Sigurðsson fagnar sigri í leikslok. Vísir/Anton
Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í þýska landsliðinu unnu í dag bronsverðlaunin á Ólympíuleikunum í Ríó.

Þýska liðið lenti undir í byrjun leiks en tók svo öll völd á vellinum og vann að lokum sex marka sigur, 31-25.

„Þetta var stórkostlegt og gaman að ná í þessa medalíu. Það er ótrúlega erfitt andlega að vinna þennan leik. Það eru allir undir mikilli pressu og þar af leiðandi mjög erfitt," sagði Dagur.

Þýska liðið tapaði með einu marki á móti Frökkum í undanúrslitunum en Pólverjar töpuðu í framlengingu á móti Dönum.

„Okkur tókst það betur að rífa okkur upp heldur en þeir. Við höfum líka nokkra klukkutíma aukalega til þess að gera það. Þeir spiluðu seinna en við í undanúrslitunum og það getur oft skipt máli," sagði Dagur.

Hann fylgdi eftir Evrópumeistaratitli með því að skila liðinu í brons á Ólympíuleikum.

„Það er mjög sterkt og sýnir sterkan karakter hjá strákunum," sagði Dagur en hver var lykillinn að því að ná í verðlaun á næsta móti eftir EM-gullið?

„Ég held að það hafi verið einbeitingin hjá leikmönnunum sjálfum. Við spilum annan hvern dag allt mótið í gegnum og þá þarftu að halda ótrúlegri einbeitingu," sagði Dagur.

„Þessi leikur um þriðja sætið er sá erfiðasti. Þú kemur inn í leikinn eftir þessu miklu vonbrigði og það er bara ein medalía í boði. Svo er hrikalega langt í næstu leika og allt undir. Þá er þessi leikur ótrúlega erfiður," sagði Dagur.    

Dagur hafði því miður ekki nema stuttan tíma fyrir íslenska blaðamanninn en fram að því höfðu þýsku blaðamennirnir hópast að honum og spurt hann spjörunum úr.

Robert „Bob" Hanning, varaformaður þýska handboltasambandsins, tók Dag í burtu úr viðtölunum en ekki var vitað hvert lá svona mikið á að fara.


Tengdar fréttir

Dagur: Hættulegt að taka fótinn af bensíngjöfinni

Strákarnir hans Dags Sigurðssonar fylgdu á eftir þriggja marka sigri á Svíum, 32-29, í fyrsta leik handboltakeppni Ólympíuleikanna með því að vinna Pólverja með nákvæmlega sama mun í gær. Liðið lítur vel út og það er margt sem minnir á liðið sem varð Evrópumeistari í Kraków 31. janúar.

Fáum við íslenskan úrslitaleik?

Dagur Sigurðsson og Guðmundur Guðmundsson eru komnir með lið sín í undanúrslit á Ólympíuleikunum í Ríó og vinni Þýskaland og Danmörk leiki sína í dag mætast þeir í úrslitaleiknum á sunnudaginn.

Strákarnir hans Dags komnir í undanúrslit

Dagur Sigurðsson er kominn með þýska handboltalandsliðið í undanúrslit á öðru stórmótinu í röð eftir að Þjóðverjar unnu stórsigur, 34-22, á Katar í 8-liða úrslitum á Ólympíuleikunum í Ríó í dag.

Dagur: Þetta var mjög flott

Dagur Sigurðsson er búinn að koma Evrópumeistaraliði Þýskalands í undaúrslit á Ólympíuleikunum í Ríó en Þjóðverjar unnu tólf marka sigur á Katar, 34-22, í átta liða úrslitum keppninnar í kvöld.

Tveir íslenskir þjálfarar í undanúrslitunum

Guðmundur Guðmundsson er komin með danska handboltalandsliðið í undanúrslit á Ólympíuleikunum í Ríó eftir öruggan sjö marka sigur, 37-30, á Slóveníu í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×