Handbolti

Dagur: Erfiðari leið inn á Ólympíuleika

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Eva Björk
Dagur Sigurðsson hélt sinn síðasta blaðamannafund á Hilton-hótelinu í Doha í morgun þar sem Þýskaland leikur næstu tvo dagan um sæti 5-8 á HM í handbolta.

Þetta varð ljóst eftir tap Þjóðverja gegn Katar í 8-liða úrslitum í gær en Dagur sagði að vonbrigðin eftir leik hafi vitanlega verið mikil.

„En það gildir það sama og eftir sigra. Við verðum að líta fram á veginn og takast á við næsta leik og næstu áskorun,“ sagði Dagur á fundinum í morgun.

„Við erum ekki þeir einu sem urðu fyrir vonbrigðum í gær. Það eru þrjú önnur lið í sama pakka með okkur og við mætum Króatíu á morgun sem er sterkt lið og frábæra leikmenn í öllum stöðum.“

„Við spiluðum vel allt mótið en það var ekki nóg gegn Katar. En við þurfum að horfa fram á veginn og líta á það jákvæða,“ sagði Dagur enn fremur.

Sjá einnig: Getum verið stoltir af spilamennskunni

Hann var spurður um dómgæsluna í leiknum í gær en Dagur vildi sem fyrr lítið tjá sig um hana. „Rétt eins og ég sagði fyrir leik hef ég ekkert að segja um það. Ég veit ekki einu sinni hvort ég megi það yfir höfuð. Við fengum fullt af færum sem við nýttum ekki en ég segi þó að það voru nokkrir hlutir í síðari hálfleik sem trufluðu mig.“

Bob Hanning, varaforseti þýska handknattleikssambandsins, var einnig á fundinum og var spurður hvort að dómgæslan hafi haft áhrif á leikinn.

„Það væri hægt að ræða um einhver mistök sem dómarinn gerði í leiknum en við gerðum bara svo mörg mistök sjálfir. Við vorum einfaldlega ekki nógu góðir. Það gekk margt á afturfótunum í leiknum en það var ekki dómurunum að kenna heldur okkur sjálfum. Í svona leik þarf allt að ganga upp - við vorum góðir en við þurftum að vera í heimsklassa.“

Sjá einnig: Gensheimer: Klúðruðum góðu tækifæri

Liðin í 2.-7. sæti HM fara í undankeppni fyrir næstu Ólympíuleika og Dagur var spurður hvort að besta tækifæri Þýskalands hafi ekki falist í því að vinna Katar í gær, þar sem nú væru tveir erfiðir leikir fram undan - sá fyrri gegn ógnarsterku liði Króatíu.

„Jú, það er hárrétt,“ var svar Dags sem var svo spurður hvernig hann kæmi leikmönnum í skilning um hversu erfiðir leikir eru fram undan.

„Leiðin inn á Ólympíuleikana er nú erfiðari. Leikmennirnir vita það. Það þarf ekkert að segja þeim það.“


Tengdar fréttir

Guðmundur og Dagur geta mæst á ný á HM í Katar

Guðmundur Guðmundsson og Dagur Sigurðsson horfðu báðir upp á sín lið detta út úr átta liða úrslitum heimsmeistaramótsins í Katar. Lærisveinar Guðmundar í danska landsliðinu töpuðu á móti Spáni en lærisveinar Dags í þýska landsliðinu lágu á móti heimamönnum í Katar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×