Lífið

Dagskráin klár fyrir listahátíð Sigur Rósar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þessi stíga á sviðið í Hörpunni.
Þessi stíga á sviðið í Hörpunni.
Nokkrum atriðum hefur verið bætt við þétta og góða dagskrá Norður og niður, listahátíðar í Hörpu.

Um er að ræða hátíð frá 27. til 30. desember þar sem vinir og samverkafólk Sigur Rósar munu koma fram í öllum mögulegum og ómögulegum plássum sem finna má í Hörpu.

Hér að neðan má sjá ný atriði sem kynnt voru í dag:

Íslenski dansflokkurinn: The Great Gathering eftir Ásrúnu Magnúsdóttur og Alexander Roberts í samvinnu við dansara Íslenska dansflokksins við tónlist listamanna sem koma fram á Norður og niður. Umkringd ljósum, hljóðum og brennheitri gufu, stór hópur af fullorðnum og börnum dansa saman með suð í eyrum. Hoppandi í pollum með blóðnasir, við lifum í öðrum heimi þar sem við erum aldrei ósýnileg. Hendumst í hringi - höldumst í hendur - allur heimurinn er óskýr.

Íslenski dansflokkurinn: Myrkrið faðmar (At dusk, we embrace) eftir Ernu Ómarsdóttur og Valdimar Jóhannsson í samvinnu við dansara Íslenska dansflokksins við nýja tónlist Sigur Rósar. Við sólstöður þegar nóttin er sem lengst og þögnin er ærandi, brýst í gegn há og magnþrungin rödd Íslenska dansflokksins við nýja tónlist Sigur Rósar. Þau dansa, öskra og berjast til að losa sig við byrðir fortíðarinnar og faðma nóttina endalausu. 

Oceanus er fjögurra rása hljóðverk eftir Chris Watson sem skapað er út frá upptökum úr Kyrrahafinu. Takið var upp í þriggja metra dýpi að næturlagi og spila upptökurnar sjaldheyrðar raddir, takta og hreyfingar sem kallast á við sýningarrýmið í Hörpu. 

Helium Karaoke er óvenjulegur „skemmtistaður“ sem rekinn er af listamanninum Kolbeini Huga. Þar má finna karaoke-vél og hljóðkerfi ásamt fjölda helíumblaðra sem þátttakendur geta nýtt í söngnum.

Stiginn / Stigin: (The Stair / The Points) Um 80 hljóðfæraleikarar úr Skólahljómsveit Austurbæjar og Skólahljómsveit Kópavogs koma saman að flytja stórt og nýtt gagnvirkt tónverk eftir Inga Garðar Erlendsson.

Rex Pistols er nýtt verkefni fyrrum forsprakka Antimony, Rex Beckett. Um er að ræða mínímalískt synthapopp í bland við gotneskan trega, tónlist hlaðin girnd og ótta, leiða og úrkynjun, varnarleysi og klæmni.

DAGSKRÁIN Á NORÐUR OG NIÐUR

27. desember (miðvikudagur)

GLOOMY HOLIDAY

BLANCK MASS

ALEXIS TAYLOR (HOT CHIP)

DIMMA

MAMMÚT

KRISTÍN ANNA

HILMAR ÖRN HILMARSSON

& STEINDÓR ANDERSEN

& PÁLL Á HÚSAFELLI

ÁRNI

ALEX SOMERS

BJÖLLUKÓR REYKJANESBÆJAR

INGI GARÐAR ERLENDSSON

- DISASTER PLAYGROUND

- THE GOLDEN WATERFALLS OF STRANDIR- DREAMLAND 

28. desember (fimmtudagur)

KEVIN SHIELDS (MBV)

GUSGUS

MARY LATTIMORE

KAITLYN AURELIA SMITH

ALEX SOMERS

KÓRUS

GYÐA

KJARTAN HOLM 

& CALEB SMITH

JO BERGER MYHRE

& ÓLAFUR BJÖRN ÓLAFSSON

BERGRÚN

PIPARKÖKUKEPPNI

- HEIMA

29. desember (föstudagur)

MOGWAI

PEACHES

DAN DEACON

JÓHANN JÓHANNSSON

ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN*

DUSTIN O’HALLORAN

JULIANNA BARWICK

JFDR

HUGAR

ALEX SOMERS

SIGRÚN

BRASSGAT Í BALA

REX PISTOLS

- UNDIR TRÉNU

- THE EXTRAORDINARY

30. desember (laugardagur)

JARVIS COCKER

STARS OF THE LID

SIN FANG, SÓLEY

& ÖRVAR SMÁRASON

ULRICH SCHNAUSS

ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN*

AMIINA

MR. SILLA

ALEX SOMERS

EIRÍKUR ORRI ÓLAFSSON

LIMINAL - SIGUR RÓS SOUNDBATH

- THE SHOW OF SHOWS

* Íslenski dansflokkurinn flytur nýtt verk við tónlist Sigur Rósar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×