Tónlist

Dagskrá Iceland Airwaves klár

JóHANN óLI eiÐSSON skrifar
Hluti þeirra hljómsveita sem tilkynnt var um í dag.
Hluti þeirra hljómsveita sem tilkynnt var um í dag.
Dagskrá Iceland Airwaves tónlistarhátíðarinnar er nú tilbúin. Hátt í 120 listamenn voru tilkynntir í dag en þeir eru þeir síðustu sem tilkynntir eru til sögunnar. Myndband með öllum nöfnum þeirra sem voru kynntir til sögunnar í dag má sjá hér í fréttinni en þá, auk þeirra sem áður voru kynntir, má skoða á heimasíðu hátíðarinnar.

Meðal þeirra sem voru kyntnri í dag má nefna HAM, Hjaltalín, Sing Fang, Gangly, Miklywhale, Kiasmos og East of my Youth. Fyrir skömmu síðan hafði verið tilkynnt um að Hot Chip væri á leið á hátíðina en þetta verður í fjórða sinn sem sveitin spilar á Íslandi.

Iceland Airwaves fer fram víða um miðborgina dagana 4.-8. nóvember næstkomandi. Alls verða um 220 listamenn sem koma fram á hátíðinni.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×