Innlent

Dagsetrinu lokað: „Vonum að það rætist úr þessu áður en veðrið fer að versna“

Viktoría Hermannsdóttir skrifar
Rannvá Olsen, forstöðukona Dagsetursins.
Rannvá Olsen, forstöðukona Dagsetursins.
Dagsetrið á Eyjaslóð, sem rekið er af Hjálpræðishernum með fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg er nú lokað. Í Dagsetrinu hafa heimilislausir skjól yfir daginn auk þess sem þar er hægt að fá ýmsa grunnþjónustu.

Að sögn Rannváar Olsen, forstöðukonu Dagsetursins, þá þarf Hjálpræðisherinn að tæma húsnæðið fyrir 1. september.  Þá rennur líka út samningur við borgina þeirra við Reykjavíkurborg. 

„Það er opið hjá okkur í Herkastalanum í hádeginu þar sem fólk getur fengið hádegismat en annars ekki,“ segir hún en Dagsetrið var opið frá 10 á morgnana þegar neyðarathvörf fyrir heimilislausa lokar og til 17 á daginn þegar þau opna á ný.

„Það eru frá 18 og upp í 40 manns sem koma daglega,“ segir hún. Nú leitar þessi hópur sér skjóls í Kaffistofu Samhjálpar eða er úti yfir daginn. „Þetta er miklu þyngri hópur heldur en hefur verið að sækja í Kaffistofuna þannig það er mikið álag þar,“ segir hún.

Borginni ekki lögskylt að hafa opið á daginn

Rannvá vonast til að það finnist nýtt húsnæði sem henti starfseminni sem fyrst en augljóst sé að mikil þörf sé á henni.

„Meðan veður er gott er þetta í lagi en það verður verra þegar fer að kólna,“ segir Rannvá og bætir við: „En við vonum að það rætist úr þessu á góðan hátt áður en veðrið fer að versna,“ segir hún.

Ekki liggur fyrir nýr samningur við borgina en Hjálpræðisherinn hefur haldið úti þjónustunni með fjárhagsaðstoð frá borginni.  

„Svo er eitt annað að það gleymist stundum að nefna að borginni er ekki lögskylt að hafa opið yfir daginn. Það er eitthvað sem Hjálpræðisherinn byrjaði með en var kærkomið fyrir borgina,“ segir hún. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×