Viðskipti innlent

Dagsektir lagðar á smálánafyrirtækin

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Neytendastofa tók ákvörðun í júní 2014 um að Kredia og Smálán hafi brotið gegn lögum um neytendalán.
Neytendastofa tók ákvörðun í júní 2014 um að Kredia og Smálán hafi brotið gegn lögum um neytendalán. vísir/stefán
Neytendastofa hefur lagt 250 þúsund krónur dagsektir á Kredia og Smálán þar til farið hefur verið að ákvörðun stofnunarinnar um gjald fyrir flýtiþjónustu. Þetta kemur fram á vefsíðu Neytendastofu

Neytendastofa tók ákvörðun í júní 2014 um að Kredia og Smálán hafi brotið gegn lögum um neytendalán með því að reikna flýtigjald ekki inn í heildarlántökukostnað og árlega hlutfallstölu kostnaðar.

Samkvæmt lögunum má árleg hlutfallstala kostnaðar ekki vera hærri en 50% að viðbættum stýrivöxtum en þegar búið er að taka flýtigjald fyrirtækjanna með í útreikninga á ÁHK verður hún töluvert hærri. Fyrirtækin kærðu ákvörðun Neytendastofu til áfrýjunarnefndar neytendamála sem staðfesti hana í desember síðastliðinn.

Þrátt fyrir það hafa fyrirtækin ekki látið af háttsemi sinni og því hefur Neytendastofa nú tekið ákvörðun um að félögin skuli hvort um sig greiða dagsektir þar til látið verður af háttseminni. 

Eins og lög um neytendalán gera ráð fyrir hafa félögin fjórtán daga til að fara að ákvörðuninni, frá því að ákvörðun um dagsektir er tekin, áður en sektirnar byrja að leggjast á. Innan sama tíma þurfa þau að kæra dagsektarákvörðunina til áfrýjunarnefndar vilji þau ekki una henni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×