Íslenski boltinn

Dagný tryggði Íslandi mikilvægan sigur

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Dagný Brynjarsdóttir (t.v.) skoraði sigurmark Íslands gegn Ísrael.
Dagný Brynjarsdóttir (t.v.) skoraði sigurmark Íslands gegn Ísrael. Heimasíða KSÍ
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu vann í kvöld góðan útisigur á Ísrael með einu marki gegn engu, en leikið var á Ramat Gan vellinum, þjóðarleikvangi Ísraels. Þetta var annar sigur Íslands í undankeppni heimsmeistaramótsins 2015, en liðið situr nú í öðru sæti 3. riðils með sex stig eftir þrjá leiki.

Íslenska liðið hafði frumkvæðið frá upphafi leiks, var meira með boltann og sótti stíft að marki heimakvenna. Fyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir komst næst því að skora fyrir Ísland í fyrri hálfleik; eftir tæplega hálftíma leik varði Merav Shamir, markvörður Ísraels, skalla hennar eftir fyrirgjöf Fanndísar Friðriksdóttur og þegar sjö mínútur voru eftir af fyrri hálfleik skaut Sara boltanum yfir úr miðjum vítateignum.

Staðan var markalaus í hálfleik, en sóknarþungi Íslands bar árangur eftir klukkutíma leik þegar Dagný Brynjarsdóttir skoraði eftir undirbúning Fanndísar. Skömmu áður hafði Þóra B. Helgadóttir varið frá Karin Sendel í besta færi Ísraels í leiknum.

Íslenska liðið hélt undirtökunum það sem eftir lifði leiks og fékk þrjú ákjósanleg færi til að bæta við mörkum undir lokin; Shamir varði skalla Söru, Dagný skallaði framhjá úr dauðafæri og í uppbótartíma átti hún svo annan skalla sem hafnaði í slánni. Fleiri urðu mörkin hins vegar ekki og Ísland fagnaði góðum og mikilvægum sigri í baráttunni um að komast á HM 2015 í Kanada.

Byrjunarlið Íslands var svo skipað:

Markvörður: Þóra B. Helgadóttir

Hægri bakvörður: Elísa Viðarsdóttir (Rakel Hönnudóttir '61)

Miðverðir: Glódís Perla Viggósdóttir og Mist Edvardsdóttir

Vinstri bakvörður: Hallbera Gísladóttir

Miðjumenn: Þórunn Helga Jónsdóttir (Katrín Ómarsdóttir '73), Sara Björk Gunnarsdóttir og Dagný Brynjarsdóttir

Hægri kantmaður: Fanndís Friðriksdóttir

Vinstri kantmaður: Dóra María Lárusdóttir

Framherji: Harpa Þorsteinsdóttir (Hólmfríður Magnúsdóttir '78)

Ísland mætir Möltu ytra á fimmtudaginn kemur. Malta situr í botnsæti 3. riðils, en fyrr í dag tapaði liðið 11-0 fyrir Sviss.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×