Sport

Dagný og Hafþór Íslandsmeistarar para

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Dagný og Hafþór fyrir miðju með bikarana.
Dagný og Hafþór fyrir miðju með bikarana. mynd/böddi tg

Dagný Þórisdóttir úr KFR og Hafþór Harðarson úr ÍR urðu Íslansdmeistarar para í keilu, en Íslandsmótið fór fram í dag.

Dagný og Hafþór höfðu betur í úrslitaviðureign gegn Ástrósu Pétursdóttur og Stefáni Claessen úr ÍR, 3-0.

Katrín Fjóla Bragadóttir og Björn Sigurðsson úr KFR höfnuðu svo í þriðja sæti og tóku heim bronsverðlaunin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×