Íslenski boltinn

Dagný í Selfoss

Anton Ingi Leifsson skrifar
Dagný og Alfreð við undirskriftina.
Dagný og Alfreð við undirskriftina. vísir/guðmundur karl
Dagný Brynjarsdóttir hefur skrifað undir samning við Selfoss í Pepsi-deild kvenna. Samningurinn er út yfirstandandi leiktíð.

Dagný eignaðist sitt fyrsta barn í síðasta mánuði en hún kemur til Selfoss frá Portland Thorns í bandarísku deildinni.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Dagný spilar með Selfyssingum en hún spilaði með liðinu 2013 til 2014. Þar skoraði hún rúmlega tuttugu mörk í 35 leikjum.

„Mér líst mjög vel á að vera komin aftur til liðs við Selfoss í nýja heimabænum mínum. Það er mjög mikil tilhlökkun að komast aftur í takkaskóna,” sagði Dagný eftir undirskriftina.

„Líkamlegt ástand mitt er hrikalega gott. Ég æfði vel á meðgöngunni og hef æft vel eftir fæðinguna og stefnan er sett á að mæta í takkaskónum í byrjun ágúst.”

„Ég er mjög ánægður með að fá Dagnýju í Selfoss aftur. Við erum að fá gæðaleikmann og það vita allir hvað hún getur. Við ætlum að gera það sem við getum til þess að hún komist í sitt fyrra form,” sagði Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari Selfyssinga, á Kaffi Krús í dag.

„Hún mun vonandi hjálpa okkur mikið í baráttunni í deildinni á lokasprettinum. Við viljum byggja þetta upp á okkar stelpum og hún er hún er ein af þeim.”




Fleiri fréttir

Sjá meira


×