Fótbolti

Dagný: Mikilvægt að vinna síðasta leik ársins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dagný Brynjarsdóttir.
Dagný Brynjarsdóttir. Mynd/Youtube-síða KSÍ
Dagný Brynjarsdóttir var í viðtali á Youtube-síðu Knattspyrnusambands Íslands eftir 1-0 sigur íslenska liðsins á Úsbekistan í lokaleik sínum á Sincere Cup æfingamótinu í Kína í dag.

Dagný var með fyrirliðaband íslenska liðsins í fjarveru Margrétar Láru Viðarsdóttur og Söru Bjarkar Gunnarsdóttur.

„Við stefndum á sigur í dag og það var mikilvægt að vinna síðasta leik ársins. Við erum búnar spila vel á þessu ári. Við höfðum heldur ekki unnið síðan að við töpuðum á móti Skotum og það var því mikilvægt að enda mótið á sigri,“ sagði Dagný Brynjarsdóttir í samtali við Hilmar Þór Guðmundsson Norðfjörð, fjölmiðlafulltrúa KSÍ, sem fylgdi íslensku stelpunum út til Kína.

„Við vorum með yfirburði allan tímann og héldum boltanum vel og vorum að skapa okkur færi. Við hefðum þurft að vera aðeins betri í kringum vítateiginn því við vorum að fá mikið af hálffærum. Við náðum einhvern veginn ekki að klára færin okkar en það er eitthvað sem við getum unnið í,“ sagði Dagný.

„Ég viðurkenni það alveg að það var frekar pirrandi að þær voru í jörðinni allan tímann. Það tók allt langan tíma hjá þeim hvort sem það voru innköst, aukaspyrnur eða þegar markvörðurinn var með boltann. Svo lágu þær líka í grasinu við minnstu snertingu. Það er mikilvægt að halda einbeitingu á móti svona andstæðingum. Það getur oft verið erfitt en mér fannst við gera það vel í dag,“ sagði Dagný.

„Þær lágu aftarlega og voru að tefja en við náðum að setja eitt mark. Það var nóg. Það var líka gott fyrir okkur að halda hreinu því við höfðum ekki náð því hér úti í Kína. Það var því gott að enda þetta á sigri og að halda hreinu,“ sagði Dagný.

„Mótið var fínt hjá okkur. Auðvitað hefðum við vilja vinna Dani sem var leikur sem var í okkar höndum. Við vorum að prófa nýtt leikkerfi og allir í hópnum fengu stórt hlutverk. Við vorum saman hér í tíu daga sem var mjög mikilvægt fyrir hópinn. Þetta er búin að vera mikil reynsla,“ sagði Dagný.


Tengdar fréttir

Freyr: Frammistaðan langt frá okkar besta

"Ég er bara óánægður að tapa, þetta var ekki leikur sem við þurftum að tapa,“ segir Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins, eftir að liðið hafði tapað 1-0 fyrir Dönum á Sincere Cup í Kína í dag.

Fanndís afgreiddi Úsbekana út í Kína

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta vann lokaleik sinn á Sincere Cup æfingamótinu í Kína og endar annaðhvort í öðru eða þriðja sæti á mótinu.

Freyr: Frábærir kaflar inn á milli hjá okkur á þessu móti

Freyr Alexandersson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, var í viðtali á Youtube-síðu Knattspyrnusambands Íslands eftir 1-0 sigur íslenska liðsins á Úsbekistan í lokaleik sínum á Sincere Cup æfingamótinu í Kína í dag.

Glódís: Vorum orkulausar í síðari hálfleiknum

„Við erum mjög svekktar. Mér fannst við betri í þessum leik og í fyrri hálfleik eigum við leikinn, þær fá tvær sóknir og skora eitt mark,“ segir Glódís Perla Viggósdóttir, leikmaður íslenska kvennalandsliðsins, eftir að liðið hafði tapað 1-0 fyrir Dönum á Sincere Cup í Kína í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×