Innlent

Dæmi um að læknar fái yfir milljón krónur frá lyfjafyrirtækjum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Formaður Læknafélags Íslands telur að upphæðirnar skerði dómgreind lækna ekki.
Formaður Læknafélags Íslands telur að upphæðirnar skerði dómgreind lækna ekki. Vísir/Getty
Dæmi eru um að lyfjafyrirtæki greiði einstökum læknum hundruð þúsunda í styrki vegna endurmenntunar eða annarra verkefna. Í einstaka tilfellum hafa styrkveitingar farið yfir eina milljón króna.

Þetta kemur fram í gögnum sem birt eru á vefsíðu Frumtaka, samtaka frumlyfjaframleiðenda á Íslandi.

Þessar upplýsingar eru nú í fyrsta sinn gerðar opinberar. Er það gert í samræmi við nýjar siðareglur EFPIA, Evrópusamtaka lyfjaframleiðenda. Alls birtu 16 lyfjafyrirtæki fjárhagsupplýsingar um samskipti sín við einstaklinga og stofnanir í heilbrigðisgeiranum hér á landi og nema heildargreiðslur þeirra 139 milljónum íslenskra króna.

Þorbjörn jónsson, formaður læknaráðs landspítali. heilbrigðismál talsmaður lækna.
Á vef Frumtaka segir að stærstan hluta upphæðarinnar megi rekja til verkefna sem tengjast klínískum lyfjarannsóknum og styrkt eru um 96 milljónir króna. Aðrar greiðslur eru til dæmis framlög og styrkir til heilbrigðisstofnana, kostnaður vegna ferða og skráningargjalda á ráðstefnur til símenntunar heilbrigðisstarfsfólks, auk þóknunar fyrir fræðslu, fyrirlestra og sérfræðiráðgjöf.

Jakob Falur Garðarsson, framkvæmdastjóri Frumtaka, segir að stórt skref sé stigið með því að birta upplýsingarnar. „Það er langbest að þetta sé allt uppi á borðum,“ bætir hann við.

Þorbjörn Jónsson, formaður Læknafélags Íslands, segist telja að upphæðirnar sem læknum hafa verið greiddar séu ekki þess eðlis að þær muni hafa áhrif á dómgreind lækna.

„Á þessu geta menn haft mismunandi skoðanir og ég held að þetta séu upphæðir sem rugli alls ekki dómgreind lækna eða valdi því að menn upplifi einhverja óeðlilega hollustu við lyfjafyrirtækið,“ segir Þorbjörn, en bætir því við að styrkirnir geti hins vegar verið mikilvægir fyrir endurmenntun lækna. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 1. júlí 2016




Fleiri fréttir

Sjá meira


×