Fótbolti

Dæmdur í sjö leikja bann fyrir kynþáttaníð

Tonev í leik með Celtic.
Tonev í leik með Celtic. vísir/getty
Búlgarinn Aleksandar Tonev hjá Celtic spilar ekki fótbolta næstu vikurnar.

Búið er að dæma þennan 24 ára gamla leikmann í sjö leikja bann fyrir kynþáttaníð í garð Shay Logan, varnarmanns Aberdeen.

Celtic hefur ákveðið að áfrýja banninu og segir að Tonev sé enginn rasisti. Félagið segist enn fremur ekki líða kynþáttaníð í sínu félagi.

Tonev er í láni frá Aston Villa og hefur aðeins verið í byrjunarliði félagsins þrisvar sinnum í átta leikjum.

Leikmaðurinn sjálfur hafnar því með öllu að hafa verið með kynþáttaníð í garð Logan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×