Erlent

Dæmd í lífstíðarfangelsi fyrir að bana sex nýfæddum börnum sínum

Atli Ísleifsson skrifar
Huntsman greindi lögreglu frá því að hún hafi verið of háð amfetamíni á tímabilinu til að sjá um börnin.
Huntsman greindi lögreglu frá því að hún hafi verið of háð amfetamíni á tímabilinu til að sjá um börnin. Vísir/AP
Dómstóll í Utah í Bandaríkjunum hefur dæmt fertuga konu í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa drepið sex nýfædd börn sín og komið líkum þeirra fyrir í kössum í bílskúr.

Megan Huntsman játaði verknaðinn fyrir dómi í febrúar en brotin voru framin á tíu ára tímabili, frá 1996 til 2006.

Í frétt CBS segir að Huntsman hafi greint lögreglu frá því að hún hafi verið of háð amfetamíni á tímabilinu til að sjá um börnin. Hún á þrjú börn á lífi.

Fyrrum eiginmaður Huntsman fann lík barnanna í bílskúr konunnar en þau höfðu áður búið saman í húsinu sem er í smábænum Pleasant Grove, 50 kílómetrum suður af Salt Lake City.

Huntsman viðurkenndi að hafa kyrkt eða kæft börnin strax eftir fæðingu og komið líkum þeirra fyrir í handklæðum, plastpokum og pakkað þeim í kassa. Einnig fannst lík af einu barni til viðbótar sem fæddist andvana.

Eiginmaðurinn Darren West var faðir allra barnanna og fann lík þeirra í apríl 2014 eftir að hafa afplánað átta ára fangelsisdóm.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×