Íslenski boltinn

Daði lánaður til Leiknis | Ritstjórinn sendur til Seyðisfjarðar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Leiknir hefur ekki unnið leik síðan í 5. umferð.
Leiknir hefur ekki unnið leik síðan í 5. umferð. vísir/valli
Leiknir hefur fengið kantmanninn Daða Bergsson að láni frá Val. Daði mun leika með Breiðholtsliðinu út tímabilið í Pepsi-deildinni.

Daði, sem er tvítugur, hefur fengið fá tækifæri með Val í sumar en hann hefur aðeins komið við sögu í átta leikjum í deild og bikar og skorað eitt mark.

Daði, sem er uppalinn Þróttari, kom til Vals um mitt síðasta sumar frá hollenska liðinu NEC Nijmegen og skrifaði undir þriggja ára samning við Hlíðarendafélagið.

Daði er annar leikmaðurinn sem Leiknir fær í glugganum en áður var liðið búið að fá hollenska sóknarmanninn Danny Schreurs sem þreytti frumraun sína með Breiðholtsliðinu gegn ÍA á sunnudaginn.

Þá hefur Leiknir lánað miðjumanninn Magnús Má Einarsson til Hugins á Seyðisfirði.

Magnús, sem er þekktur sem annar tveggja ritstjóra vefmiðilsins Fótbolta.net, hefur aðeins komið við sögu í þremur leikjum með Leikni í sumar en hann kom til liðsins í fyrra frá uppeldisfélaginu Aftureldingu.

Huginn er í 3. sæti 2. deildar og er í harðri baráttu við Leikni Fáskrúðsfirði og ÍR um sæti í 1. deildinni á næsta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×