Tónlist

Daði Freyr og Karitas senda frá sér sumarsmell

Stefán Árni Pálsson skrifar
Daði og Karitas hafa ekki unnið saman áður.
Daði og Karitas hafa ekki unnið saman áður.
Daði Freyr og Karitas Harpa Davíðsdóttir hafa gefið út nýtt lag saman og var það frumflutt á Bylgjunni í morgun.

Daði Freyr sló í gegn í forkeppni Eurovision á þessu ári og Karitas vann aðra þáttaröðina af The Voice Ísland.

Daði og Karitas hafa þekkst í tíu ár og hafa þau ákveðið að skíra hljómsveit sína Karitas&Daði.

Hér að neðan má hlusta á viðtal við þau tvö sem tekið var á Bylgjunni í morgun og einnig má heyra lagið. Lagið heitir Hér og nú og stefna þau á það að gefa út þrjú lög saman á næstunni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×