Erlent

Cynthia Lennon er látin

Atli Ísleifsson skrifar
Cynthia Lennon og Julian Lennon.
Cynthia Lennon og Julian Lennon. Vísir/Getty
Cynthia Lennon, fyrri eiginkona Bítilsins John Lennon, er látin. Fjölskylda Cynthiu greinir frá þessu á Twitter.

Lennon fæddist í Blackpool þann 10. september 1939 og varð því 75 ára gömul.

Cynthia og John kynntust þegar þau stunduðu nám við Liverpool College of Art og voru saman á árunum 1962 til 1968. Þau áttu saman soninn Julian Lennon árið 1963.

Síðustu ár ævi sinnar bjó hún á Mallorca á Spáni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×