Körfubolti

Curry fór illa með James

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Curry var magnaður í leiknum í nótt.
Curry var magnaður í leiknum í nótt. Vísir/Getty
NBA-meistararnir í Golden State Warriors unnu stórsigur á Cleveland Cavaliers í nótt, 132-98, en þetta eru sömu lið og áttust við í lokaúrslitunum um titilinn í vor.

Hinn magnaði Steph Curry var stjarna leiksins með 35 stig í þeim þremur leikhlutum sem hann lék. Andre Iguodala kom næstur með 20 stig en leikurinn fór fram í Cleveland, þar sem Golden State tryggði sér titilinn.

Leikurinn var aldrei spennandi. Golden State náði 30 stiga forystu strax í fyrri hálfleik og náði þar með að svara fyrir afar óvænt tap gegn Detroit um helgina.

Cleveland náði aðeins að laga stöðuna undir lok leiksins en það stefndi í stærsta tap félagsins á heimavelli frá upphafi. Forysta Golden State var komin í 40 stig í í þriðja leikhluta.

LeBron James skoraði sextán stig fyrir Cleveland.

LA Clippes vann Houston, 140-132, í framlengdum leik í Los Angeles. JJ Redick skoraði 40 stig í leiknum sem er persónulegt met en Clippers setti niður 22 þrista í leiknum sem er félagsmet.

Redick setti niður fyrstu fimm þriggja stiga skotin sín í leiknum og skoraði alls níu þriggja stiga körfur í tólf tilraunum. Chris Paul var með 28 stig og tólf stoðsendingar. Dwight Howard var með 36 stig og 26 fráköst sem er met hjá honum.

New Orleans Hornets vann Utah Jazz, 124-119, í tvíframlengdum leik. Þar skoraði Kemba Walker 52 stig sem er félagsmet hjá New Orleans. Hann nýtti sextán af 34 skotum sínum úr opnum leik og fjórtán af fimmtán vítaskotum sínum.

New York vann Philadelphia, 119-113, einnig í tvíframlengdum leik. Carmelo Anthony sneri til baka eftir að hafa misst af tveimur leikjum í röð og tryggði liði sínu framlengingu í lok fjórða leikhluta með þriggja stiga körfu þegar lítið var eftir af leiknum. Hann var með nítján stig í leiknum.

Úrslit næturinnar:

New York - Philadelphia 119-113

Charlotte - Utah 124-119

Washington - Portland 98-108

Memphis - New Orleans 101-99

Detroit - Chicago 101-111

Atlanta - Orlando 98-81

Toronto - Brooklyn 112-110

Golden State - Cleveland 132-98

Dallas - Boston 118-113

LA Clippers - Houston 140-132

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×