Körfubolti

Curry á vinsælustu treyjuna í NBA-deildinni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Curry er vinsæll og veit af því.
Curry er vinsæll og veit af því. vísir/getty
Rimman svakalega á milli Golden State og Cleveland um NBA-meistaratitilinn hafði góð áhrif á sölu á NBA-varningi.

Mest var selt af varningi tengdum þessum liðum. LA Lakers var í þriðja sæti og ber að þakka kveðjutímabili Kobe Bryant fyrir það.

Treyju Stephen Curry hjá Golden State var sú mest selda í deildinni og treyja LeBron James, leikmanns Cleveland, kom þar á eftir.

Treyja Kobe Bryant endaði svo í þriðja sæti þó svo ansi margir hafi átt Kobe-treyju fyrir.

Í fjórða og fimmta sæti komu svo treyjur Kyrie Irving og Klay Thompson.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×