Tónlist

Cryptochrome frumsýnir 360 ° myndband

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Hljómsveitin Cryptochrome hefur sett sér það stórfenglega markmið að senda frá sér nýtt myndband í hverjum mánuði. Metnaður sveitarinnar er gífurlegur eins og sést á myndbandi mánaðarins sem er við lagið Play Dough og er frumsýnt hér á Vísi. Myndbandið má sjá hér að ofan.

Hér nýtir leikstjóri myndbandsins Logi Hilmarsson sér nýja tækni sem stundum kölluð Virtual Reality eða 360 ° en eins og nafnið gefur til kynna er allt rými í allar mögulegar sjónáttir nýtt.

„Það er hægt að horfa á þetta á venjulegum tölvuskjá þar sem þá er hægt að draga sjónarhornið með músinni í þá átt sem þú vilt horfa eða með símanum þar sem þú hreyfir hann til þess að beina sjónlínuna í einhverja tiltekna átt,“ útskýrir Anik Karensson rappari sveitarinnar.

„Besta leiðin til þess að skoða þetta er VR gleraugna tæki sem þú setur á höfuðið. Þá geturðu bara snúið höfðinu og skoðað allt í kringum þig. Þá ertu inn í myndbandinu sjálfu.“

Alls kyns kynjaverur birtast í nýja myndbandinu.Vísir/Cryptochrome
Hvert áhorf ný upplifun

Myndbandið er unnið þannig að eitthvað er að gerast frá öllum áttum þannig að ný upplifun fæst í hvert skipti sem horft er á myndbandið.

„Ef eitthvað fer framhjá þér í fyrsta skiptið sem þú sérð það, þarftu bara að horfa í aðra átt þegar þú horfir á það næst.“

„Það er ekki hægt að leikstýra hverju skoti fyrir sig eins og í venjulegum myndbandið,“ bætir Una Stígsdóttir söngkona og rappari við. „Í þessu felast nýjar pælingar sem kvikmyndagerð hefur ekki þurft að kljást við áður. Söguþráður fer svolítið í laust loft þegar það er eitthvað að gerast alls staðar. Það er ekki lengur hægt að tala um línulega frásögn.“

Þetta er fimmta myndbandið sem Cryptochrome sendir frá sér á þessu ári en saman verða lögin 11 talsins og munu í heild mynda hina sjónrænu breiðskífu More Human. Myndböndin eru unnin af mismunandi fólki en Anik og Una koma að listrænni útfærslu í þeim öllum auk þess að semja tónlistina og hanna búninga sjálf.

Logi Hilmarsson gerði einnig febrúar myndband Cryptochrome við lagið Clappo.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×