Viðskipti erlent

CrossFit kóngurinn er maðurinn á bakvið stærstu líkamsræktarkeðju heims

ingvar haraldsson skrifar
Greg Glassman, stofnandi CrossFit er orðinn milljarðamæringur.
Greg Glassman, stofnandi CrossFit er orðinn milljarðamæringur. mynd/cbs news
Greg Glassman, fyrrum fimleikamaður, stofnaði fyrstu CrossFit líkamsræktarstöðina árið 2001 í SantaCruz í Kaliforníu. Glassman hafði verið rekinn sem leiðbeinandi af fjölmörgum líkamsræktarstöðvum vegna óvenjulegra æfingaaðferða.

Í dag eru CrossFit stöðvarnar orðnar yfir tólf þúsund um heim allan og Glassman er orðinn milljarðamæringur en Glassman var nýverið til umfjöllunar í bandaríska fréttaskýringaþættinum 60 minutes.

Hver sem er getur opnað CrossFit stöð

Það eina sem þarf að gera til að opna CrossFit stöð er að greiða þrjú þúsund dollara, um fjögur hundruð þúsund krónur og fara á fara í gegnum tveggja daga námskeið.

Glassman segist ekki setja nein skilyrði fyrir því hvað fólk þurfi að gera eftir að það opni CrossFit stöð. Frjálshyggjumaðurinn Glassman trúir því að hinn sterkasti muni lifa af. Því setur hann engin skilyrði fyrir því hvað rekstraraðilar þurfi að geri eftir að stöðin opni. Þess vegna sé hægt að opna nýja CrossFit stöð við hlið annarrar.



Hreyfing ekki nóg ef mataræðið fylgir ekki


Í þættinum kom fram að Bandaríkjamenn hafa aldrei haft aðgang að fleiri líkamsræktarstöðvum en þeir hafa engu síður aldrei verið feitari. Glassman segir hluta af ástæðunni vera að þeir hugsi ekki um mataræðið samhliða hreyfingu. Það dugi ekki bara að mæta í ræktina og lyfta nokkrum lóðum fara svo heim og borða ruslfæði.

Sjá má viðtal 60 minutes við GregGlassman í spilaranum hér að neðan.


Tengdar fréttir

Ofkeyrsla í líkamsrækt getur valdið varanlegum skaða

Gauti Grétarsson sjúkraþjálfari varar við ofurþjálfun. Segir fólk ofmeta eigin getu og ofkeyra sig í líkamsræktinni. Skemmdir á líkamanum geta orðið varanlegar og alvarlegustu tilfellin lífshættuleg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×